Eimreiðin - 01.07.1956, Page 12
164
EIMREIÐIN
sögunnar. Bókin er að minnsta kosti tvíþætt og skáldskapar-
gildi hennar svo ríkt, að lesandinn ræður ekki við umhugs-
unarefnið nema gerþekkja það, sem á bak við býr. Hér hefst
sá ferill, sem Martin A. Hansen valdi sér í skáldskap sín-
um. Möndull sögunnar er ábyrgðartilfinningin, barátta til
jákvæðrar lausnar. Næst kom svo „Lykkelige Kristoffer", sem
er sagnfræðileg skáldsaga, en þó umfram allt persónulegt
listaverk. Ýmsir telja þetta snjöllustu skáldsögu höfundarins.
Undirritaður metur „Jonatans rejse“ meira, en hér er um að
ræða merkilegt framhald þess, sem þar hófst. Nú verður
ábyrgðartilfinningin að fórnarvilja, táknið reynist stærra og
fyrirheitið meira, en sagan getur naumast talizt skemmtilega
nýstárleg á borð við hina fyrri, tvíleikur kímni og alvöru vík-
ur fyrir persónulegu veraldarviti. Höfundurinn gerist ærið
skyldurækinn við köllun sína- og eins og þungur í vöfum boð-
unarinnar. Hins vegar er bygging sögunnar sterk og markvís
og stíllinn fullkomnari og áhrifameiri en nokkru sinni áður.
Þá mun ráðlegast að geta síðustu skáldsögu Martins A. Han-
sens, sem nefnist „Lögneren". Hún er sambærilegri við „Jona-
tans rejse“ en „Lykkelige Kristoffer" sem afrek hugkvæmn-
innar og listrænnar túlkunar þess, er skáldinu bjó í huga. Sag-
an fjallar um styrjöld góðs og ills á vígstöðvum alvöru og
tilviljunar, engir stórviðburðir í fljótu bragði, allt látið ger-
ast á hulduslóðum andlegrar reynslu, þó að holdið fari með
aðalhlutverkið öðru hvoru, smátt gert stórt í tákni þess, sem
kallast mannleg örlög. Hér er þriðja áfanganum náð. Nú er
hvorki staðnæmzt við ábyrgðartilfinninguna né fómarvilj*
ann, því að höfundurinn finnur sig knúinn til að skiigreina
mikilvægi hins góða og illa og lætur sigurvegarann tapa þv*
stundlega og öðlast þannig þroska þess, sem aldrei verður
skilið nema lifað.
IV.
Skáldsögur Martins A. Hansens marka þróunarferil hans
breiðastan og dýpstan, en smásögurnar eru ekki síður girni-
legar til mats og skilnings, þó að tekjan sé þar vandfundnari
þeim, sem vilja safna miklu fyrirhafnarlítið á skömmum