Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Side 23

Eimreiðin - 01.07.1956, Side 23
LISTAM ANNALAUNIN 175 menn hlutfallshækkun gerð á launum opinberra starlsmanna, skal fara eins um listamannalaun. 9. gr. — Listamannafé, sem veitt er í ijárlögum til úthlutun- ar árlega, skal úthluta af þingkjörinni nefnd, eftir nánari ákvæðum í fjárlögum, en að fengnum tillögum menntamála- fáðs og fimm manna nefndar, kosinnar af fulltrúaráði Banda- lags íslenzkra listamanna, og geri hvor aðili í sínu lagi til- lögur til úthlutunarnefndar. í 1. grein segir, að tiltekin tala listamanna skuli ia föst laun. betta virðist vera gott og réttmætt við fyrstu sýn. En hér er aðgætandi að talað er um tölu, en ekki menn. Eftir þessu skal talan vera full og föst, og er það ekkert markvert. En lista- ttiennirnir sjálfir geta verið valtir í sessi og jafnóvissir um sjálfa sig og verið hefur. Þarna hefði átt að standa, að tilteknir listamenn skuli fá föst árslaun. Sjálfsagt vakir það og fyrir þeim, sem frumvarpið sömdu. Og skulu þeir hafa þökk fyrir það, þótt hugmyndin sé að vísu gömul. En þeir segja það hvergi ákveðið í frumvarpinu, og getur þetta orðið hættulegt fyrir listamennina, því að það getur komið fyrir, að valdhafi leggi annan skilning í lög, en löggjafi hefur ætlazt til, ef óljóst er orðað. Þarna er menntamálaráðherra gefið vafasamt vald. 2. grein kveður svo á, að sex menn fái kr. 20.000,00 hver. Eftir þessu á að fækka í 1. flokki um helming eða meira frá því, sem verið hefur. Þarna ætti ekki að standa sex menn heldur tíu. Þá er sagt í þessari grein, að sameinað þing skuli ákveða, hverjir eigi að sitja í þessum flokki. A þingið þá að koma í staðinn fyrir úthlutunarnefnd nú, og mun það koma í sama stað niður, hvort þingið kýs nefndina eins og verið hefur eða velur sjálft listamennina. Mun flokkaskipting ráða eins og áður, hvort sem haft er og útkoman verða hin sama. 3. grein ræðir um þrjá launaflokka með 15, 12 og 8 þús. kr. hver. í þessari grein er sagt, að menntamálaráðherra skuli, eftir tilnefningu, ákveða hverju sinni hverjir eigi að hreppa þessi laun. Eins og allir vita er menntamálaráðherra jafnan mikill »pólitíkus,“ og flokksbundinn oftast. Ef hann á að ráða út- hlutuninni, er hún komin á eina ,,pólitíska“ hönd, og mun þá i'áðherra stöðugt verða vændur um hlutdrægni vegna stjóm-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.