Eimreiðin - 01.07.1956, Síða 27
LISTAMANN A LAUNIN
179
sem þannig hefur misst listamannalaun, hlotið þau að nýju,
ef hann sezt að aftur hér á landi. Og metur úthlutunarnefnd
samkvæmt 10. grein þetta.
7. gr. — Sameinað Alþingi kýs árlega þriggja manna nefnd
til þess að ákveða hverjir skuli hljóta listamannalaun.
Áður en listamannalaun eru veitt í fyrsta sinn, skal öllum
félögum og samtökum listamanna gefinn kostur á að gera til-
'ögur um hverjir þau skuli hljóta.
8. gr. — Listamannafé, sem veitt er í fjárlögum árlega, skal
úthluta af nefnd þeirri, er um getur í 7. gr.
9. gr. — Við veitingu listamannalauna og úthlutun lista-
mannafjár skal eingöngu miðað við listgildi verka lista-
niannsins.
10. gr. — Eigi skal sækja um listamannalaun eða lista-
mannafé.
11. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi.
Hér er gert ráð fyrir að Alþingi heiðri framvegis eins og að
undanförnu nokkra frábæra afreksmenn í listum. Eru þeir
a hærri launum og ofan við alla þessa flokkaskipan.
Eigi þarf að gera nánari grein fyrir þessum tillögum en
þá, sem felst í fyrrgreindum athugasemdum um .frumvarp
það, sem fram er komið á Alþingi um væntanleg launakjör
listamanna.
Hins vegar er ekki fjarri lagi, að í þessu sambandi birtist
hér, í tímariti skálda og rithöfunda, nokkrar almennar hug-
ieiðingar á víð og dreif um listir og listamenn, þref fuglanna
um brauðið og úthlutunarnefnd.
Alkunnugt er það stríð, sem árlega er háð hér í landi vegna
öthlutunar á fé því, sem Alþingi ætlar til þess að launa lista-
uienn landsins. Og er það í raun og veru öllum aðilum til
skammar. Falla mörgum illa þessar sífelldu skammir, ádeilur
°g persónulegar svívirðingar, sem þessu fylgja eins og reykur
eldi. Bitnar þetta og hart á listamönnunum sjálfum, sem
°ft þarfnast mest friðar og kyrrðar. Harðast eru þeir þó
leiknir, sem eru í úthlutunarnefndinni, enda þótt þeir hafi
verið valdir úr hópi mætra manna, og síðasta úthlutunamefnd-
ln alla tíð talin sú langversta. Til úrbóta hefur þó margt
verið reynt, en allt hefur það reynzt árangurslaust, óánægjan