Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Page 47

Eimreiðin - 01.07.1956, Page 47
Svipmyntlir frá Islandi eftir G. K. Yeates. Þegar komið er norður fyrir sextugustu breiddargráðu, íer þekking á landafræðinni jafnan að minnka. Það er eins °g hinn siðmenntaði maður hafi aldrei komizt norður fyrir Björgvin og Stokkhólm og eftirlátið allt landssvæði þar fyrir norðan Eskimóum einum og hvítabjörnum — auðvitað að undanskildum hinum hugdjörfu landkönnuðum, sem af óskiljanlegum ástæðum hverfa frá notalegum aringlóðum heimilisins til þess eins að skjálfa af kulda á hájöklum og °g hjarnbreiðum norðursins. Því eru það langflestir, sem halda að nafnið ísland sé samtengt norðurpólnum og þar sé ekki annað að finna en Eskimóa og snjóhús þeirra. Ekkert menningarland vorra tíma hefur orðið eins illi- ^ega fyrir barðinu á misskilningi og vankunnáttu og ísland. Nafni landsins er að nokkru leyti um þetta að kenna, en auk þess hefur hin tíða tilvísun til hinna „djúpu lægða yfir ís- landi“ í veðurfregnum brezka útvarpsins haft sín áhrif á ftdlljónir hlustenda og veitt þeim heldur drungalega og vafa- sama fræðslu um landið, svo að þaðan hafa þeir um það heldur en ekki rangsnúnar hugmyndir. En Grænland er ^ hinn bóginn álitið vera sannkallaður Edengarður. Ekki 'arð dvöl brezkra hermanna á íslandi á styrjaldarárunum heldur til þess að breyta neitt verulega til batnaðar hugmynd- um brezks almennings um landið og þjóðina. Enda þótt all- ir þeir hermenn, sem til íslands komu, hafi kannske litið Beykjavík augum, þá voru þó flestir þeirra þegar í stað ^uttir í herbúðir fyrir utan bæinn, og flestum hafði þeim Veríð valinn heldur óvistlegur staður, annaðhvort svartur ^uelsandur eða eyðileg hraunbreiða, og hætt er við að Tóm- asi Atkins hafi þótt þriggja til fjögurra mánaða vist sín við heræfingar þar heldur ömurleg og frekar til þess fallin að

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.