Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Side 49

Eimreiðin - 01.07.1956, Side 49
SVIPMYNDIR FRÁ ÍSLANDI 201 á sleni hinna gömlu eldgíga sinna og bjó sér til nýja, rétt til þess að sanna að fjör henn- ar og funi væri ekki nándar nærir liðið undir lok, og hélt áfram að gjósa í samfleytt sex mánuði. Það land, sem þannig hefur orðið til, á því lítið af mjúkri fegurð til að bjóða ferðamann- tnum. Til samanburðar eru hrjóstrugustu svæði skozku hálandanna hljóð og blíð. Fegurð íslenzkrar náttúru, sem í fyrstu er óneitanlega köld og lítt aðlaðandi, vex með viðkynningu, því að hún byggist ekki á skrúði og htríki, sem einkennir suðlæg- ari lönd, heldur á fegurð formsins og samleik ljóss G. K. Yeates. °g skugga, á andstæðunni niilli hinnar hvítu hjarnbreiðu og hins dimma hrauns, en tamminn er hinn víðfeðmi heimur lofts og rúms. Stundum G. K. Yeates er brezkur kaupsýslumaður, sem á námsárum sínum við Oxfordháskóla lagði stund á sögu og fornbókmenntir, en er nú kunnur 1 heimalandi sínu fyrir bækur sínar um fugla og Ijósmyndir af þeim. Fækur hans um þetta efni eru nú um tíu að tölu, og fylgir þeim jafnan fjöldi mynda, sem margar hverjar þykja frábærar. Einnig skrifar hann Uln þetta efni og birtir fuglamyndir sínar í brezkum tímaritum og blöðum. Tvívegis hefur Yeates heimsótt ísland i þeim tilgangi að taka myndir af íslenzkum fuglum og kynnast landi og þjóð. Hefur hann skrifað bók uni ferðalög sín hingað til lands, er nefnist „The Land of the Loon“, og hirtist fyrsti kafli bókarinnar hér í íslenzkri þýðingu. Fjallar höfundur- 'nn þar um fyrstu kynni sín af landinu og hver áhrif náttúrufegurð þess hafði á hann. Þá lýsir hann því einnig nokkuð, hvernig höfuðstaður lands- lns kom honum fyrir sjónir. Lýsingar hans eru glöggar og sanngjarnar og gefa góða hugmynd um 1 hvaða ljósi við birtumst menntuðum útlendingi.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.