Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Side 54

Eimreiðin - 01.07.1956, Side 54
206 EIMREIÐIN aðist það ekki aftur fyrr en mörgum öldum síðar, í dögun núverandi fullveldis landsins, en það fullveldi var loks endur- reist að fullu árið 1944 eftir langa baráttu. ísland nútímans getur sýnt umheiminum litla þjóð, sem nú hrósar sigri yfir því að hafa af eigin rammleik og festu ræktað sér sinn eigin lund í sól menningarinnar. Þetta hefur hinni smáu þjóð tekizt, þrátt fyrir hið hrjóstruga og erfiða umhverfi, sem ekki aðeins bauð upp á eins lítil náttúrugæði og hugsazt getur, þó að ekki sé tekið tillit til þeirra lands- svæða, sem hulin eru eilífum ísi, heldur fjandskapaðist við hana og olli eyðileggingu. íslendingurinn er fáeddur í nágrenni jökla og eldfjalla, sem hljóta að teljast liinir verstu nábúar, sem náttúran hefur upp á að bjóða, og hefur frá upphafi þurft að heyja hina hörð- ustu baráttu við náttúruöflin og eyðileggingu þeirra. Sigrar hans hafa verið ótrúlega miklir og öllu meiri fyrir það, að aldrei hafa íslendingar tekið þátt í styrjöldum. Allt þetta hefur átt sinn ríka þátt í því að móta skapgerð og persónu- leika íslendingsins. Sjórinn hefur skapað sjálfstraust hahs, ævintýraþráin þekkingu á umheiminum, samgönguerfiðleik- arnir hinn öfundsverða eiginleika góðvildar og gestrisni, jökulhlaupin og eldgosin hina óbifandi festu og framsækm, sem gert hefur íslendingum kleift að leggja vegi í gegnum hraunin og símalínur um óbyggðirnar. Eitt aðalvitnið um þennan sigur mannsins yfir umhverfi því, sem hann lifir í, er Reykjavík. Enda þótt útlit og skipu- lag borgarinnar falli kannske ekki öllum í geð, hlýtur hún samt að teljast allmerkilegt afrek. Reykjavík er ísland, þ3® er að segja ísland nútímamannsins, sem stendur andspænis íslandi fjalla og jökla, og borgin virðist vera hálfgert vand- ræðabarn fyrir þetta harðbýla land. í Reykjavík býr hvorki meira né minna en rúmlega einn þriðji hluti allra íbúa landsins, sem eru 160000 að tölu, og enn streymir fólkið þangað frá öðrum landshlutum. Slík samþjöppun íbúanna á einn stað getur auðvitað ekki orðið til neins góðs fyrir landið í heild. Efnahagsvandamál íslands og eðlilegt jafn' vægi á því sviði eru og munu líklega alltaf verða mjög erfið viðfangs. Skortur á náttúruauðæfum, svo sem kolum °S

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.