Eimreiðin - 01.07.1956, Síða 72
224
EIMREIÐIN
fang hans. En ef til vill kæmi hann alls ekki, ef til vill hafði
hann hana bara að leiksoppi, eins og mönnum var títt í
sumarleyfum. Þegar allt kom til alls, var hann sennilega
kvæntur.
Hún reikaði um húsið og vann störf sín annars hugar.
Sam lét sem hann sæi hana ekki; þetta nýja viðhorf hafði
aukið honum kraft og festu. Hann fór ekkert út, nema þeg-
ar hann skrapp niður að stígnum bak við garðinn og skraf-
aði við samverkamenn sína úr námunni. Hún komst ekki
hjá því að fara út í bæ; konurnar gláptu á hana forvitnislega;
hún leit niður fyrir sig. Þegar hún kom heim, var hann að
rífa nýju ferðatöskuna hennar í tætlur. Augnaráð hans var
rólegt, en óhugnanlega fast og ákveðið.
„En . . . þetta er blátt áfram bjánalega!" stamaði hún.
„Haltu þér saman," sagði hann. Honum varð litið á inn-
kaupatöskuna hennar. „Þér er betra að fara strax að spara
saman. Það eru sextíu pund, sem hann verður að fá greidd,
hann föðurbróðir þinn.“
Þannig liðu þrír langir dagar. Sam var þögull, en hafði
alltaf auga með henni. Honum varð ekki á að snerta hana,
— hvorki nótt né dag. Kviksetningin hafði ekki orðið hon-
um að líkamlegu meini, en var ekki hugsanlegt, að hann
hefði orðið fyrir andlegu áfalli? Kynlegum, þöglum krafti
geislaði út frá honum. Hann hafði alltaf ráðskað með hana
og þvaðrað og gortað, en nú kúgaði hann hana með allt öðr-
um hætti; hún fann, að hún var á valdi hans og undir eftir-
liti hans, jafnvel þegar hún var ein á ferli úti við. Hana
langaði til að flýja; hún ætlaði að fara til Dai föðurbróður
síns, hún ætlaði að æpa og halda því fram, að Sam hefði ein-
hverja hræðilega hefnd í undirbúningi; ef til vill ætlaði hann
að myrða hana. Ekki varð á neinu séð, að hann hefði í hyggju
að fara aftur til vinnu. Bara hann færi nú að horfa á hunda-
veðhlaupin!
Hvað eftir annað var hún komin alla leið þangað, seffl
sporvagninn nam staðar, en sneri alltaf heim aftur. Og alltaf
sat hann við eldavélina, sveigði digran svírann og gluggaði
í dagblað. Segði hún eitthvað, skipaði hann henni að þegja-