Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Page 77

Eimreiðin - 01.07.1956, Page 77
LOKAHRÍÐIN 229 til vill nokkurn ótta í sínum áferðafallega, hversdagslega svip. Hann opnaði munninn, en lokaði honum aftur. Nú var stund ákvörðunarinnar upp runnin. Skyndilega spratt Megan upp af eldhússbekknum, og augnaráð hennar var tryllings- iegt. „Fantur, skepnal" æpti hún og óð að Sam með kreppta hnefana. „Væri ég karlmaður, skyldi ég berja þig í rot! Mig gildir einu, livort hann tekur mig með sér eða ekki. Ég fer frá þér!“ Froðufellandi af reiði gekk hún skrefi nær honum. Hann leit ekki af henni, og af augnaráði hans mátti ráða, að nú væri hann tekinn að reiðast. „Þú hefur alltaf verið þræll og fúlmenni, ég hata þig. Það væri þér mátulegt, að þú lægir og rotnaðir niðri í námugöngunum!“ Þau nístu hvort annað heiftaraugum. Hún æpti: „Ég fer frá þér, ég ferl“ Sam lyfti hendi eins og til vamar, — það var sú með tveim- ur fingrunum. Megan starði á þá sem sturluð. Það var engu líkara en vottaði fyrir djöfullegum glottglampa í augum hans. En hann sagði kaldranalega: „Gleymdu ekki sextíu pundunum, sem þú skuldar honum Dai, föðurbróður þínum — og þekki ég rebba gamla rétt, hefur hann upp á þér, hvert sem þú ferð, og lætur þig ekki í friði, fyrr en hann hefur fengið skuldina greidda að fullu.“ Megan hopaði frá honum og lét fallast grátandi á eldhús- bekkinn. „Hvers vegna gazt þú ekki drepizt niðri í námugöngun- um!“ vældi hún. Sam sneri sér að gestinum. „Jæja, hvað hyggizt þér fyrir? Takið einhverja ákvörðun, maður! Kvenfólki er ekkert um hengilmænur gefið. Ef þér viljið fá hana, — takið þér hana þá!“ Ted þuklaði vandræðalega hattinn á hnjám sér. Svo taut- aði hann lágt: „Ef þér viljið ekki gefa eftir skilnaðinn, kemur það víst ekki til greina." „Jæja, það má heyra, að þér berið virðingu fyrir hjóna- bandinu," sagði Sam, og það var viðurkenningarhreimur í töddinni. Hann bætti við, ofboð góðlátlega:

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.