Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1962, Blaðsíða 38

Eimreiðin - 01.05.1962, Blaðsíða 38
Ei'tir þrjátíu ára fjarveru var ég loks kominn heim — heim á óðal feðra minna, þar sem ég sleit barns- skónum. Þetta var seint í ágúst í dumbungsveðri, háin lagðist í leg- ur á túninu, og það var höfgi yfir öllum gróðri. Daufur ilmur af smára barst að vitum mér. Ur hlöðuopinu barst angan af orn- aðri töðu, sem var alveg eins og brauðlykt. Mér þótti svo vænt urn torfuna, að mér var þungt í geði af því, að hún var komin úr ætt minni, ekki svo mikið sem tjald- stæði var eftir af langfeðgaeign minn til þess að hvílast á eftir úti- vistina ströngu. Ég reikaði út í kirkjugarð. Leiði föður míns og afa stóðu óhögguð, hlaðin upp svo liátt, að þau náðu því nær í mjöðm. Því hærra, sem leiði voru hlaðin, því meir þótti hinum dánu vera gert til þægðar. Járnkrossar miklir stóðu enn á leiðunum, annar þeirra var að vísu orðinn mjög skakkur, en báð- ir á kafi í sigurskúf og hvönn. Þessar þúfur eins og lieyrðu mér til. Ég skar bút af gróskulegum livannarlegg og tuggði og tuggði, og ég fann sérkennilegan keim hressa kverkarnar eins og ég hefði bergt á kryddvíni, grænhvítir blómhjálmarnir, firnaháir, mynd- uðu því nær laufskála líkt og í hvannagarðinum fyrr meir, þar sem við börnin lékum okkur, sæl sem börn foreldranna fyrstu í Eden, — og suðrið gáraðist vind- hröfnum, sem kornu með þunga- rigningu, en hún skelfdi börnin ekki meir en það væri fyrsta dögg I heimsó nýskapaðrar jarðarinnar, sem stelp upp til að lofa skapara sinn. Ég tyllti mér á aðra þú£un_ mína og starði á sæbröttu, S1^ móskulegu Eyjarnar, er náðu 1 hálfa suðurátt; bilin eða geila1'1*. milli sumra þeirra voru einken'1 leg fjörumörk þar í lágsveitunuu1^ Saltur andvari frá hafi barst ■ vitum mér, og ég svalg han11 djúpum teygum. Lengi hafði L~ þráð að sjá til hafs og jökla- Þarna sat ég um stund hljððlU og þar eð ég var lúinn, rann U í brjóst. Ég þóttist heyra inauna mál: „Illa kann ég við að eiga að f‘u . í gröfina þá arna,“ var sagt dinulU röddu. . „Ja, hvort ég skil. Sjálfur ante. ég ekki að vera jarðaður neffla ‘ helgum degi, ef...“ anzaði ^ rödd, en í þeim svifum hrökk e upp með andfælum. Tók ég eftir moldarbing skammt fra f veitti athygli nýtekinni gröf- n an virtust mér raddirnar hafa ^01 izt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.