Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1967, Page 70

Eimreiðin - 01.01.1967, Page 70
50 F.IMREIfílN ég sé hreinskilnari en þú átt að venjast, að fólk sé. Þér hefir ugg- laust verið sagt, að ég hafi brotið sjötta boðorðið, en svo ólíklegt sem það er, þá er það aðeins þjóðsaga almannarómsins. Hon- um fannst heildarmyndin af Kristni Hákonarsyni í Háatúni ekki fulldregin, ef þann dráttinn vantaði í. Og Kristinn gamli glotti við. En það var ekki fyrir dyggðug- heitin, sem ég braut það ekki, blessaður. Mig langaði bara ein- faldlega aldrei til þess nerna einu sinni. Og þá hafði ég ekki upp- burði og döngun til þess. Já, hví- líkur blessaður einfeldningur, sem ég þá var og skilningslaus. Nei, fari það bölvað, að ég sé að gera að gamni mínu. Þessa hefi ég iðrast eins um ævina. Sjáðu nú til. Það mun hafa verið sumarið, sem hún Lauga mín gekk með hann Bjössa okkar, að hún Anna réðst til okkar kaupakona. Ég tók í fyrstu ekkert sérstakt eftir henni, hafði enda margt á prjón- unum þetta sumar og gróða- hyggjan rýmdi flestum öðrum hugsunum úr vegi. En þegar kom undir júlílok, fann ég, að eitthvað var að. Mér fannst ég hvergi geta verið kyrr í verki nema Anna litla væri einhvers staðar nálægt, og legði ég aðeins aftur augun, þá sá ég svip henn- ar og fas svo greinilega fyrir mér, eins og þessi geislandi lífvera hefði verið prentuð óafmáanlega í hug mér. Drottinn minn, hví- lík fegurð og hvílíkt vaxtarlag. Jæja, ég þumbaðist við Adant- inn í mér og lét sem ekkert væri. Agústkvöldin komu með mjúku rökkri og angan úr engjaheyi, og hlátrar Onnu litlu hljómuðu lyrir eyrum mér á heimleiðinni af engjunum eins og silfurbjöll- ur. Hún var kát, hún Anna. En ég var bundinn af umgengnis- venjunum, sem við vorum að tala um áðan, og heimskulegum hugmyndum um syndina, svo að ekkert gerðist — nema hugrenn- ingar, sem enginn ræður við. Hefir þú nokkurn tíma haft kvenmann í blóðinu, eins og sumir kalla það, karl minn? Nei, hvernig spyr ég annars. Þú ert á þeim aldrinum, þegar konan er karlmanninum svo himnesk vera, að náttúran sefur eins og saklaust barn. En mundu orð mín seinna: Það spaugar ekki við að hafa kvenmann í blóðinu og þora ekki að hlýða söng þess. Jæja, einhvern veginn dragnað- ist ágústmánuðurinn á braut og síðan september fram til rétta. Réttardaginn ætlaði Anna litla að fara úr kaupavinnunni, og kvöldið fyrir vorum við tvö eitt- hvað að snúast í eldhúsinu, eftir að aðrir voru setztir að. Þá var það, sem ég réð mér ekki lengur. Ég greip Onnu litlu í fangið og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.