Eimreiðin - 01.04.1974, Side 19
ElMfcEIÐlN
fyrirtæki að spara fé, eykst sparnaður í bankakerfinu og á
fjármagnsmarkaði almennt, en samsvarandi minnkun verður
á neyzlu og fjárfestingu (eftirspurn). Þegar til lengdar lætur,
myndu raunhæfir vextir, sem þýða myndu hærri vextir en
verið hafa á íslandi á undangengnum árum, bæta mjög skipt-
ingu þess fjármagns, sem fyrir hendi er, á milli þeirra fram-
kvæmda, sem beztan afrakstur gefa. Með því að beina fjár-
magni lil framkvæmda með hárri framleiðni og frá þeim, sem
minni framleiðni hafa, þá munu raunhæfir vextir auka meðal-
framleiðni í hagkerfinu. Af þessu myndi hins vegar leiða aukið
heildarframboð á vörum og þjónustu, og þar með myndi draga
úr verðbólguþrýstingi.
Eigi yrði komizt hjá einhverjum verðhækkunum, er hag-
kerfið aðlagast hærri vöxtum. Grundvallarmunur er þó á slík-
um hækkunum og þeim verðbólgukenndu verðhækkunum, sem
auðkennt hafa hið islenzka hagkerfi. í hinu frjálsa markaðs-
kerfi er sífelld hreyfing fjármagns og vinnuafls á milli hinna
ýmsu framleiðslu- og þjónustugreina, samkvæmt hlutfallslegri
111