Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1974, Qupperneq 20

Eimreiðin - 01.04.1974, Qupperneq 20
EIMREIÐIN 112 framleiðni þeirra. Ef gert er ráð fyrir jafnvægi í hagkerfinu í uppliafi, þá eru launahækkanir (verðhækkun vinnuafls) og vaxtahækkanir (verðhækkun fjármagns) sú leið, sem leiðir hagkerfið lil nýs jafnvægis, þegar hið upphaflega jafnvægi hefur verið sett úr skorðum með breytingum á hlutfallslegri framleiðni í ýmsum greinum. Þar sem vaxtarskilyrði eru hlut- fallslega góð, er unnt að bjóða vinnuafli liærri laun, eins og áður var getið, þar til jaðarframleiðni vinnuafls liefur jafnazt í hinum ýmsu greinum hagkerfisins. Hið sama gildir um vexti; fjárfesting í vaxtargreinum mun aukast á kostnað fjárfestingar i öðrum greinum, þar til jaðarframleiðni fjár- magns er aftur orðin jöfn i öllum greinum. Þjóðartekjur verða hærri í hinu nýja jafnvægisástandi; livort verðlag og vextir verða jafnframt hærri að aðlögunartímabilinu loknu er undir fjármálaþróun komið. — Ef lmgkvæml hefði verið að hafa hærri vexti á síðusta áram, liver er ástæða þess að svo hefur ekki verið? — Meginástæðuna má telja vöntun þess, að stjórnmálaleið- togar viðurkenni hið mikilvæga lilutverk vaxtakerfisins við örvun sparifjármyndunar og dreifingu fjármagns til þeirra framkvæmda, sem mest myndu auka þjóðartekjur. Önnur ástæða kann að vera, að óeðlilega lágir vextir séu orðnir sam- grónir verðbólgukerfinu, og hafi gegnt því hlutverki að bæta að nokkru skaða þann, sem ákveðnar atvinnugreinar liafa orðið fyrir af völdum verðbólgu (t.d. sjávarútvegur); af þessum ástæðum er nauðsynlegt, að innleiðsla raunhæfra vaxta sé liður í heildarumbótum á verðbólgukerfinu. Hver svo sem orsök lágra vaxta hefur verið, þá liefur afleiðingin verið sú, að grafið hefur verið undan lífeyrissjóðakerfinu, sparifjármyndun hefur ekki verið örvuð en hvatt til hárrar neyzlu, skuldasöfnun hefur verið verðlaunuð en fólki hegnt fvrir sparsemi, en dregið liefur verið úr hagvexti með slæmri nýtingu fjármagns til fjárfestinga. Fáir Islendingar taka lengur alvarlega hið l'ornkveðna, að sparnaður sé upphaf auðs, þar sem reynslan hefur sannað ólvirætt, að skuld er upphaf auðs. Hið síðarnefnda sést glöggt, ef lítið er á nokkrar tölur. Otlán viðskiptabankanna námu 2Í),5 milljörðum króna i árslok 1973, en Spariinnlán 23,1 milljörðum. Ef gert er ráð fyrir 30% verðbólgu á árinu 1974 og meðal- vöxtum 11% á útlán og 8% á spariinnlán, þá munu lánatak- endur í raun hagnast um 5,0 milljarða króna, en tap spari- fjáreigenda næmi 3,9 milljörðum. í ljósi þróunar mála á fyrstu sex mánuðum ársins, er þó ljóst, að um mun hærri tölur verður að ræða. Félagslegt réttlæti er þar af leiðandi mikilvæg ástæða )
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.