Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Page 31

Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Page 31
KRISTÍN INDRIÐADÓTTIR mun það hafa gerst fyrir áhrif úr öðrum áttum þó hugmyndafræðin að baki þeirra sé svipuð (viðtöl Eiríkur Stefánsson 1992, Jónas B. Jónsson 1992). Því verður ekki á móti mælt að Steingrímur var brautryðjandi á mörgum sviðum. Hann bæði nýtur þess og geldur að vera fyrsti skólamaðurinn sem fer til framhaldsnáms til Vesturheims og kemur svo heim með misvelkomnar nýjungar. Hann var duglegur að koma þeim á framfæri en tíminn og aðstæðurnar réðu því hvort þær náðu fótfestu. Þó mikil gróska og vöxtur væru í menntamálum þjóðar- innár á þriðja áratugnum og margir skólamenn væru ötulir talsmenn nýrra við- horfa í uppeldismálum var jarðvegurinn varla tilbúinn fyrir stjórnarbyltingu. A fjórða áratugnum lét Steingrímur mun minna til sín taka í skólamálum á opinberum vettvangi. Það má geta sér þess til að honum hafi sámað mjög þegar Jónas frá Hriflu veitti ungum og óreyndum manni, Sigurði Thorlacius, skólastjóra- stöðuna við hinn nýja Austurbæjarskóla og þegar kennslueftirlitið var lagt niður. Hann var ekki heldur skipaður í þá nefnd sem undirbjó breytingar á lagasetningu á þessum árum. Hann flutti þó ýmis erindi, bæði á kennaraþingum og víðar, og bækur hans voru endurútgefnar. Eftir að bókum um uppeldisfræði á íslensku fjölg- aði ritaði hann oft um þær og vildi að þær kæmust í hendur sem flestra. Taldi hann íslendinga of hirðulausa um uppeldi því þeir hefðu verið haldnir þeirri „rótgrónu og alt of algengu meinvillu, að upplag hvers manns valdi næstum því öllu um það, hvað úr honum verður" (Steingrímur Arason 1938). Alla sína starfsævi var Steingrímur trúr sínu íslenska sveitauppeldi sem hann mat mikils (1953 víða) en þau viðhorf, sem hann varð svo fanginn af á námsárum sínum í Ameríku, entust honum einnig til æviloka. Afstaða hans til barnsins og þroskamöguleika þess, væri því skapað gott umhverfi, var hin sama og bandarískra verkhyggjumanna. Hann leit fyrst og fremst á notagildi þess sem kennt var í skólum og var eindreginn andstæðingur hins gamla „námsgreinaskóla". Skólinn var að hans áliti eðlilegur hluti af lífinu og hann undirstrikaði það bæði með kennsluaðferðum sínum og ekki síður öllu því efni sem hann samdi fyrir börn. Skóli Steingríms var mannbótaskóli og hann var sjálfur lifandi dæmi um mann, sem varð mikið úr eðlislægum hæfileikum fyrir atbeina menntunar og reynslu, og sýndi í verki óbilandi trú á að það sama gilti um alla aðra menn. 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.