Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 64

Uppeldi og menntun - 01.01.1995, Side 64
BREYTT ATVINNUIÍF OG FÆRNI STARFSMANNA Wolff 1991) og deilt er um áhrif tækniframfara á kröfur til starfsmanna. í fyrsta lagi hafa verið settar fram kenningar um að kröfur til starfsmanna séu ekki að aukast, þvert á móti stuðli tækniframfarir nútímans að því að störf verði einhæfari og geri æ minni kröfur til starfsmanna. Snemma á áttunda áratugnum setti Braverman (1974) fram þá kenningu að í kjölfar aukinnar tækni fylgdu minni kröfur til starfsmanna. Skoðanabræður hans hafa stuðst við athuganir á sögulegri þróun starfa í frumframleiðslu (Spenner 1983, Form 1987, Howell og Wolff 1991). Þeir segja að atvinnurekendur noti nýja tækni til að einfalda störf svo þeir eigi auðveldara með að skipta um starfsmenn og þar með að halda launum niðri. Þannig megi komast hjá því að fjárfesta í þjálfun starfsmanna sem hvenær sem er geti horfið til verka annars staðar (sjá t.d. Shaiken 1986, Form 1987 og Vallas 1988). Niðurstöður athugana hafa einnig bent til að breytingar á skrifstofu- og þjónustu- störfum hafi verið í átt til einföldunar (Cassedy og Nussbaum 1983, Leidner 1993). Aðrir hafa aftur á móti sett fram kenningar um að ný tækni og breytt við- skiptaumhverfi muni auka kröfur til starfsmanna í öllum störfum. Þessar aðstæður kalli á æ hæfari starfsmenn eigi fyrirtæki að standast samkeppni og því verði að leggja áherslu á starfsmenntun og að símenntun verði fastur liður í starfsemi fyrirtækja (sjá t.d. Reich 1991 og Carnevale 1991; Commission on the Skills of the American Workforce 1990, IRDAC 1990 og Johnston og Packer 1987). Því er haldið fram að sveigjanleiki og færni í samskiptum við viðskiptavini og til samvinnu á vinnustað skipti nú meira máli en áður þar sem starfsmenn vinni æ meira saman í teymum að lausn verkefna og mikilvægt sé að þeir geti gengið hver í annars verk (Carnevale 1991, Reich 1991). Þannig geti lagskiptur vinnumarkaður - sem skiptist í sérmenntað fagfólk og ófaglært verkafólk - valdið óbætanlegum töfum í þróunar- og umbótastarfi sem miðar að því að fullnægja nýjum og nýjum kröfum (Camevale 1991) . Þessar kenningar hafa ekki verið studdar með niðurstöðum vísindalegra rannsókna svo nokkru nemi. Enn aðrir hafa sett fram þær kenningar að í raun eigi sér ekki stað neinar heildarbreytingar heldur séu kröfur í sumum störfum að aukast en fari minnkandi í öðrum. Jafnframt komi fram nýir færniþættir sem starfsmenn þurfi að tileinka sér en aðrir hverfi (Hodson 1988, Wallace 1989, Hoachlander o.fl. 1991). Ný störf verða nú fyrst og fremst til í þjónustuiðnaði. Við upphaf þessarar aldar missti landbúnaðurinn stöðu sína sem undirstaða efnahagslífsins. Því er spáð að á sama hátt muni framleiðsluiðnaðurinn tapa lykilhlutverki sínu í efnahagslífinu við upphaf næstu aldar (Johnston og Packer 1987). Engu að síður verða framleiddar iðnaðarvörur eins og áður en á ódýrari og einfaldari hátt, s.s. nú á við um landbún- aðarvörur. Þannig muni þjónustuiðnaður taka við sem meginundirstaða efna- hagskerfisins og öll ný störf í nánustu framtíð verði til þar. Þessi þróun er þegar hafin hér á landi (Framkvæmdanefnd um framtíðarkönnun 1987, Stefán Ólafsson 1992) . Óvíst er hvaða fæmi muni einkum reyna á í þessum nýju störfum eða hvort ný störf verði flóknari eða einfaldari en störf sem vænta má að hverfi. Þróun starfa mótast af ákvörðunum sem teknar eru um skipulag þeirra. Þeir valkostir sem menn standa frammi fyrir við hönnun starfa snerta einkum aðgang að upplýsingum. Zuboff (1988) hefur skilgreint þessa kosti. I fyrsta lagi er um að 62
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.