Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Side 42

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Side 42
ÞEGNSKAPARMENNTUN ingalegri reynslu úr barnæsku um hvað maður á skilið, reynslu sem er frumlæg- ari en allar reglur og stofnanir (sjá Kristjánsson 2003a; 2003b; einnig Solomon 1995). Þessi ágreiningur skiptir að sjálfsögðu verulegu máli þegar ákveðið er hvernig taka beri á dygðinni réttlæti í lífsleiknikennslu. LOKAORÐ Eg vona að lesendur séu nú nokkru nær um hvað hin róttæku andmæli beinaberrar lífsleikni gegn þegnskaparmenntun ganga, eða myndu ganga, út á. Næsta skrefið getur verið að spyrja hvort eitthvert mark sé takandi á þessum andmælum. Þeirri spurningu verður hins vegar ekki svarað hér; ég hef þegar haldið uppi vörn fyrir beinabera lífsleikni á öðrum vettvangi (Kristján Kristjánsson 2001) og tilgangur minn á þessum blöðum var einungis sá að reifa andmælin, ekki að réttlæta þau. í staðinn ætla ég að fá að enda ritgerðina með því að svara gagnrýni sem mig grunar að þeg- ar hafi búið um sig í huga einhverra lesenda. Gagnrýnin væri þessi: Hef ég ekki rangtúlkað hin meintu andmæli með því að kalla þau „róttæk"; eru þau ekki bara eitt afbrigði íhaldsrakanna gegn þegnskapar- menntun í dulargervi? Ihaldsmenn eru þekktir fyrir að skrifa alla siðferðisbresti á reikning einstaklinga fremur en félagslegra ástæðna, og er þetta ekki kjarni andmæl- anna að ofan, það er sá að þegnskaparmenntunin risti of grunnt þar sem hún taki að- eins á skelinni sem umljúki hinn frjálsa vilja einstaklingsins til góðra eða illra verka en ekki á viljanum sjálfum? Róttæklingar hafa löngum haft horn í síðu beinaberrar lífsleikni fyrir að boða „ný-íhaldsstefnu" (Nash 1997) sem engu vilji breyta í samfé- lagsgerðinni; er hér ekki komin enn ein staðfesting þess? Mér til málsbóta fylgja hér nokkrar ástæður þess að ég teldi slíka gagnrýni missa marks. I fyrsta lagi vilja málsvarar beinaberrar lífsleikni hrinda í framkvæmd víðtæk- um lífsleikniáætlunum í skólum; það er langt í frá að þeir vilji engu breyta, og þeir þjást ekki af ótta íhaldsmanna (í þeim skilningi á „íhaldssemi" sem kynntur var til sögu áður) við innrætingu í skólum. Þeir andmæla þannig ekki þegnskaparmenntun með rökum íhaldsmanna um að hún sé óraunsæ eða skaðleg heldur hinum að hún sé ekki nógu víðfeðm og metnaðarfull! I öðru lagi hafa málsvarar beinaberrar lífsleikni - andstætt íhaldsmönnunum - ekkert á móti því að þegnvísi sé kennd í skólum, svo framarlega sem hún skyggi ekki á siðferðilegu grunngildin. I þriðja lagi snýst beina- bera lífsleiknin ekki bara um að gera einstaklinga góða og fróða; lokamarkmiðið er að bæta samfélagið í heild (Lickona 1991:320-321; Kilpatrick 1992:226). Slíkt er naum- ast dæmi um hefðbundna „íhaldsmennsku". Eg sagði að samkvæmt beinaberu lífsleikninni væri þegnskaparmenntunin ekki nógu metnaðarfull. Ef til vill mætti á móti bera beinaberu lífsleikninni á brýn að vera o/metnaðarfull; nægir þar að minna á djörfustu spár Golemans (1995) um að tilfinn- ingagreind ráði 80% af árangri fólks í námi og starfi. Ýmsar rannsóknir hafa þegar sýnt fram á bættan staðblæ og hegðun í þeim skólum sem hleypt hafa af stokkum beinaberum lífsleikniáætlunum, ekki síst á yngri skólastigum, en engin staðfesting hefur fengist fyrir því að kennsla í lífsleikni af því tagi eða öðru breyti siðferðilegum 40
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.