Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 61

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 61
GUÐNY GUÐBJORNSDOTTIR skóla (American Association of University Women, 1999). Það er jafn mikil einföldun að setja alla af sama kyni undir einn hatt og það að fjalla kynhlutlaust um „nemend- ur". Mikilvægi kynferðis sem felur í sér tvískiptingu sem veldur mismunun hverfur ekki við það (Lahelma og Gordon, 1998: 124; Krokan, 2000). Til að ná frekari árangri í jafnréttismálum fyrir tilverknað skólakerfisins þarf að breyta námskránum, eins og fram hefur komið, og ennfremur að þróa og bæta við jafnréttismælikvörðum sem viðmiðum um árangur skóla. Það er mat höfundar eftir áratuga starf að jafnrétti í menntamálum, bæði á sviði rannsókna, menntamálaráðuneytis og á vettvangi stjórnmála, að ekki sé lengur hægt að kenna vanþekkingu á jafnréttismálum um stöðu mála. Vinna þurfi gegn allskonar viðnámi, hefðum og mótbárum sem eru bæði af faglegum, pólitískum og sögulegum toga. Krokan (2000) greinir ákveðið bakslag í norskum námskrám frá Mönsterplanen 1987 til Læreplanen 1997 þar sem minni áhersla er lögð á að nemar verði efnahagslega sjálfstæðir óháð kynferði og á valdastöðu kynjanna almennt. Tekið er undir skýringu hennar sem tengist stöðu jafnréttismála á tíunda áratugnum, bakslagi í jafnréttisbar- áttu kvenna, áherslum á karlamenningu og póstmódernískum áherslum. Norska námskráin frá 1997 leggur meiri áherslu en áður á kynhlutleysi og að kynin séu eins sem eins konar viðnám gegn nýjum, oft róttækum kenningum og hugmyndum um margbreytileika kyngervis (2000:45-46). Líklegt má telja að námskrár framhaldsskólans verði endurskoðaðar fyrr en síðar ef marka má umræðuna um styttingu framhaldsskólans og þróun í menntamálum nágrannalandanna. Mikilvægt er að allir þeir sem taka jafnréttismál alvarlega leggi sitt að mörkum til að námskrár í íslenskum skólum svari kalli tímans um raunveru- legt jafnrétti. A meðan nýfrjálshyggjan er ráðandi stefna í menntamálum er mjög mikilvægt að skoða jafnréttismálin í sem víðustu ljósi og stuðla að því að jafnréttis- mælikvarðar verði notaðir við mat á árangri skóla. Að öðrum kosti er hætta á að mis- rétti og mismunun aukist og valfrelsi nái eingöngu til sumra en ekki annarra (Guðný Guðbjörndóttir, 2001; Apple, 2001a, 2001b). Athugasemdir og þakkarorð i Þýðing höfundar á eftirfarandi tilvitnun: „Curriculum is intensely historical, political, racial, gendered, phenomenological, autobiographical, aesthetic, theological, and international." (Pinar, Reynolds, Slattery, og Taubman. (1995: 847). Skáletrun í þýðingu er höfundar. ii Berglind Rós Magnúsdóttir kennari og M.A. nemi í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla ís- lands aðstoðaði við greiningu gagnanna. Henni færi ég mínar bestu þakkir fyrir veitta aðstoð. iii. Verkefnið Menntun og kynferði hefur verið styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla íslands. Efni þess- arar greinar var fyrst flutt á ráðstefnu Rannsóknastofu í kvennafræðum í Háskóla Islands 5. októ- ber 2002.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.