Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Blaðsíða 70
KÖNNUN Á ORÐAFORÐA i ENSKU
að nemendur eigi að hafa náð vissu marki í orðaforða við námslok en þar er talið að
eftir sex einingar í ensku ættu nemendur að geta staðist First Certificate in English, en
það er staðlað breskt próf sem notað er víða um lönd. Til að standast þetta próf er
talið að þurfi orðaforða upp á 3500 orð. í lýsingu á lestrarþætti prófsins er þess getið
að umfangsmikinn orðaforða þurfi til að standast það. Nemendur eiga að geta lesið
með auðveldum hætti skáldverk, bækur af öðrum toga og greinar í tímaritum og
dagblöðum (Camhridge First Certificate in English, 2003). Til samanburðar má geta þess
að nemendur sem útskrifast úr framhaldsskóla í ísrael, 18 ára að aldri, eiga að hafa
náð valdi á 3500-4000 orðafjölskyldum í ensku (Laufer, 1998) og er það jafnvel talið
lágt.
Námsefni sem notað er víða í fyrstu áföngum í ensku í framhaldsskólum hérlend-
is er miðað við First Certificate stigið þó að það sé ekki opinbert viðmið. Gerð var laus-
leg könnun á einni námsbók sem hefur verið notuð í fyrstu áföngum nokkuð margra
framhaldsskóla, First Certificate Masterclass (1994). Nokkrir lestextar úr ýmsum
hlutum bókarinnar voru skoðaðir með tilliti til orðaforða. Það kom í ljós að orð sem
flokkast undir 2000 algengustu orðin í ensku samkvæmt lista Nations (1996) voru
áberandi. Sömuleiðis var nokkuð af orðum úr flokki þeirra 1000 orða sem næst koma
að tíðni.
Orðalistar sem viðmið
Við Victoria-háskólann í Wellington hefur verið unnið öflugt starf á sviði orðaforða.
Undir ritstjórn Paul Nations hafa verið gerðir orðalistar yfir 1000, 2000 og 3000 orða-
fjölskyldur sem oftast koma fyrir í ensku (high-frequency words). Auk þess hefur verið
tekinn saman listi yfir 800 orð, A University Word List, eins og hann er nefndur, sem
hefur að geyma orð sem eru sameiginleg mörgum sviðum og koma víða fyrir í rituð-
um textum af ýmsu tagi, einkum fræðitextum, en einnig dagblaða- og tímaritsgrein-
um (Nation, 1996). Þetta eru þverfaglegu orðin sem áður er getið um og talið er að
þau séu um 9% allra orða sem koma fyrir í fyrrgreindum textum (Nation, 2001). Sem
dæmi um þessi orð má nefna attach, crucial, transition, ultimate, evidence, impact, device,
controversy. Nation (2001) skilgreinir þessi orð sem verkfæri í höndum þess sem þarf
að vísa í og fjalla um annarra verk (assume, establish, indicate) og fást við gögn af ýmsu
tagi (analyse, assess, concept).
Coxhead (2000) hefur tekið saman nýjan lista, Academic Word List, hliðstæðan
University Word List. Orðalistinn byggist á gagnagrunni orða sem safnað var úr text-
um sem notaðir eru í háskólakennslu. A listanum eru 570 orðafjölskyldur og voru
þær valdar með tilliti til tíðni og þess hve vel orðin spanna sem ólíkust svið. Coxhead,
eins og reyndar fleiri, bendir á gagnsemi þess að taka mið af þessum orðalista í
tungumálakennslu, sérstaklega í námskeiðum þar sem fengist er við texta á sviði
hinna ýmsu fræða og vísinda. Orðalistinn ætti að koma sér vel í sérhæfðum áföngum
í ensku í framhaldsskóla þar sem áhersla er lögð á lestur fræðigreina. Það villir á viss-
an hátt fyrir að kalla þessa orðalista University Word List og Academic Word List vegna
þess að orðin þar eru þverfagleg, spanna vítt svið og gagnast einnig við lestur texta
utan hefðbundins háskólanáms.
68