Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 77

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 77
AUÐUR TORFADOTTIR koma nemendum á það stig að þeir hafi vald á 2000 orðafjölskyldum úr því að sá fjöldi er talinn nokkurs konar lykill að góðu áframhaldi. Það er sjálfsagt að hafa þetta að leiðarljósi og bæta síðan við þeim 800 orðum sem tilheyra þverfaglega orðalistan- um og svo koll af kolli. Það er ekki nóg að sjá orð einu sinni jafnvel þótt því sé veitt eftirtekt. Til að orð fest- ist í minni þarf það að verða á vegi lesandans með vissu millibili í mismunandi sam- héngi, annars gleymist það fljótt. Fræðimenn hafa ekki komið sér saman um hve oft þetta þarf að gerast enda margar breytur í því dæmi. Nation (1990) kemst að þeirri niðurstöðu eftir ýmsar athuganir að þetta geti verið 5-16 skipti eftir því hvaða orð er um að ræða. Þetta sýnir fram á nauðsyn þess að sem mest sé lesið og einnig hlustað og rennir stoðum undir það að tungumálakunnátta þróast á löngum tíma. Víxlverkun á milli lesskilnings og orðaforða er kunn. Rannsóknir hafa sýnt fram á að aukinn lestur, einkum lestur langra, samfelldra texta eykur orðaforða; orðin síast smám saman inn þó að athyglin beinist fyrst og fremst að inntaki textans (Anderson, Wilson og Fielding, 1988; Krashen, 1989; Paribakht og Wesche, 1999). Gott dæmi um þetta er rannsókn sem fram fór á tveimur hliðstæðum nemendahópum í 10. og 11. bekk í framhaldsskóla í IsraeF 111. bekk, sem er næstsíðasti bekkur í framhaldsskóla, voru í vaxandi mæli lagðir fyrir nemendur fjölbreyttir textar af þyngri gerðinni. Þegar orðaforðinn var mældur í lok skólaársins, var m. a. notað próf til að mæla stærð hans og var prófið af svipuðum toga og það sem lagt var fyrir í könnuninni hér. Hjá nemendum í 11. bekk hafði óvirki orðaforðinn aukist um 1600 orð, úr 1900 í 3500, og það sýnir að hægt er að auka orðaforðann umtalsvert ef markvisst er unnið. Þá vaknaði sú spurning hvers vegna það tók 10. bekkinga sex ár að ná 1600 orða mark- inu (Laufer, 1998). Því meir sem er lesið, því meiri verður orðaforðinn. Því meiri sem orðaforðinn er, því betri verður lesskilningurinn og þar með rná gera ráð fyrir að lestraráhuginn aukist. Markviss lestur stuðlar að næmari máltilfinningu almennt og góð máltilfinning hefur væntanlega áhrif í þá veru að auðvelda lesandanum að geta í eyðurnar og lesa á milli línanna. Þannig styður hvað annað. Þessi óbeina aðferð er þó ekki talin nægja til að byggja upp og festa í minni orða- forða. Til þess þarf líka að beina athyglinni að orðunum sjálfum og því samhengi sem þau eru í (Ellis, 1994; Robinson, 1995). Þess vegna er mikilvægt að þjálfa nemendur í að beita markvissum aðferðum til að auka orðaforða sinn. Þar má sem dæmi nefna að ráða í merkingu orða út frá samhengi, fara orðhlutaleiðina og nota þær upplýs- ingar sem orðið sjálft felur í sér, eins og forskeyti, stofna og viðskeyti. Lykilatriði er að nemendur veiti orðunum athygli og velti þeim fyrir sér og verði þar með virkari í að byggja upp sinn eigin orðaforða. í Aðalnámskrá fyrir framlinldsskóla. Erlend mál er lögð áhersla á mikilvægi orðaforða og það sama má segja um Aðalnámskrá fyrir grunnskóla. Erlend mál eins og áður er minnst á. Það væri æskilegt að setja inn í aðalnámskrár grunn- og framhaldsskóla einhver viðmið um orðaforða fyrir tiltekin stig í náminu; til dæmis við lok 8. og 10. bekkjar grunnskóla, eftir fyrsta ár og eftir síðasta skylduáfanga í framhaldsskóla. Þar sem tíðniorðalistar eru nú þegar til ætti það að auðvelda verkið. 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.