Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 142

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 142
MAT Á SAMSKIPTAHÆFNI FJÖGURRA ÁRA BARNA og víðsýni barna, efla kristilegt siðgæði þeirra og styrkja sjálfsmynd og getu þeirra til að leysa mál á friðsamlegan hátt. 1 umfjöllun aðalnámskrár um leiðir að markmiðum kemur fram að efla beri lífsleikni barna en í henni felast meðal annars færni til sam- skipta, rökræn tjáning og lýðræðisleg vinnubrögð. Þá segir ennfremur: „Styðja þarf börn í að virða settar reglur og gefa þeim kost á að leysa úr eigin málum og deilum á friðsamlegan hátt. Samskipti í leikskóla þurfa að vera með þeim hætti að allir virði rétt annarra." (Menntamálaráðuneytið, 1999:16). Astæða þess að ég valdi að rannsaka félagsþroska og samskiptaskilning leikskóla- barna á rætur að rekja til reynslu minnar í leikskólastarfi. A þeim árum sem ég vann í leikskóla ígrundaði ég oft ásamt samstarfsfólki mínu hvernig við starfsfólk leikskól- ans og foreldrar barnanna gætum aðstoðað þau við að verða færari í samskiptum. Reynslan hefur kennt mér að samskipti barna í leikskóla geta verið fjölbreytt - allt frá því að barn sýnir einstaka færni og til þess að fram koma vísbendingar um að barn eigi eftir að kljást við samskiptaörðugleika síðar í lífinu. Því þótti mér athyglisvert að skoða birtingarform félagsþroska leikskólabarna og skoða hvar íslensk leikskólabörn eru stödd í samskiptahæfni samkvæmt stigum félagsþroska sem sett hafa verið fram af erlendum vísindamönnum (Kohlberg, 1981; Selman og Schultz, 1990; DeVries og Zan, 1994). Rannsóknin' fór fram í tveimur leikskólum, tilraunaleikskóla og samanburðar- skóla. Upphaflegt markmið rannsóknarinnar var að skoða annars vegar hvar börn á fimmta ári eru stödd í félagsþroska og hins vegar hvort unnt sé að auka samskipta- hæfni barna í tilraunaleikskóla með breyttum vinnubrögðum sem leggja áherslu á aukið sjálfræði þeirra. Markmið þetta var ekki að öllu leyti raunhæft og því tókst ekki að sýna fram á marktækan mun barna í tilraunaskóla og samanburðarskóla. í ljósi þess að ekki reyndist marktækur munur á samskiptahæfni barnanna samkvæmt þeim mælingum sem lagðar voru fyrir er hér fjallað sameiginlega um niðurstöður úr báðum leikskólum. Almenn skilgreining hugtaksins félagsþroski er sá hæfileiki einstaklings í sam- skiptum við aðra að geta uppfyllt eigin langanir án þess að ganga á rétt annarra (Harré og Lamb, 1983:594). Selman og Schultz (1990) telja að félagsþroski feli í sér að geta samhæft félagsleg sjónarmiö (social perspective coordination), það er hæfileiki barns til þess að aðgreina og samhæfa eigin og annarra sjónarmið og skilja tengsl hugsana, tilfinninga og óska beggja aðila (Selman og Schultz, 1990:6). Þau (Selman og Schultz, 1990:7) settu fram stig í hæfni til að aðgreina og samhæfa félagsleg sjónarmið, samskiptaskUning (interpersonal thought) sem lýtur að tengslum tjáðrar hugsunar og þeirrar vitrænu hugsunar sem liggur þar að baki. Skoðað er hvaða aðferðum börn beita í samskiptum við jafnaldra sína og samskiptahæfni (interpersonal understand- ing) þeirra er metin. í þessari rannsókn var stuðst við kvarða DeVries og samstarfs- fólks hennar (DeVries, Reese-Learned og Morgan, 1992) sem aðlagaður er að notkun til að meta samskiptahæfni leikskólabarna og byggist á sama fræðilega grunni og kvarði Selmans og samstarfsfólks hans (Selman,1980; Selman og Schultz, 1990). 1 Rannsóknin var M.Ed. verkefni greinarhöfundar sem lauk námi árið 2001 frá Kennaraháskóla íslands. Leiðbeinandi var Hrafnhildur Ragnarsdóttir prófessor við KHÍ. 140
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.