Ægir - 01.01.1933, Page 13
eftir að vinnudeilunni létti og róðrar
byrjuðu, var þar strax ágætur afli. Heild-
arafli 22280 skpd.
•Á árinu var byggð allmyndarleg haf-
skipabryggja i Keflavík, á svo kölluðu
Vatnsnesi, sem er rétt innan við kaup-
túnið. Er brýggjan öll úr járni, nema
slitpallur úr tré. Er þetta til mjög mik-
illa bóta og hagræðis, fyrir allan suður-
hluta Reykjanesskagans, því gera má ráð
fyrir að mestallur flutningur á þunga-
vöru, ekki að eins að og frá Keflavík
og Njarðvíkum, heldur einnig fráöðrum
veiðistöðvum á Reykjanesskaga, fari fram
við þessa bryggju, þar sem vegir á milli
veiðistöðvanna eru góðir og vegalengdir
ekki miklar. Þrátt fyrir það, þó staðir
staðir þessir liggi ekki langt frá Hafnar-
firði eða Reykjavík, hafa flutningar að
og frá þessum stöðum verið mjögkostn-
aðarsamir. Nokkur skip hafa nú í haust
verið afgreidd við þessa brjrggju, og hef-
ur það sýnt sig að hægt er að afgreiða
þar skip í töluvert verra veðri, en búist
var við, eftir allri aðstöðu þar. óskar
Halldórsson, útgerðarmaður í Reykjavik
hefur látið byggja bryggjuna og er eig-
aodi hennar, en einhvern styrk hefur
hann fengið til hennar af opinberu fé.
Þá hefur Útvegsbanki íslands h.f., sem
nú er eigandi að Keflavik, látið byggja
þar stór og mikil söltunar- og íiskað-
gerðarhús, rétt ofan við aðalbátabryggj-
una, og í ráði er að sama stofnun láti
hyggja þar sjógeymi til fiskþvotta og
hreinlætis fyrir ofan fiskverkunarhúsin.
Hefur þvi öll aðstaða í Keflavík til fisk-
veiða og verkunar batnað stórum á þessu
ári.
Frá Vatnsleysuströnd og Vogum,gengu
2 stórir bátar, sem eru eign Útgerðarfé-
lags Vatnsleysustrandar, og 9 opnir bátar.
Afli 2458 (1498).
Hafnarfjörður, þaðan gengu á vertíð-
inni 8 togarar, 8 lfnuveiðagufuskip og 2
vélbátar yfir 12 lestir, er þetta 1 línu-
veiðagufuskipi og 1 vélbát fleira en árið
áður. Afli 35751 skpd. (42110).
Reykjavík, þaðan gengu mestalla ver-
tíðina 26 togarar, 7 línuveiðagufuskip og
7 mótorbátar, stærri en 12 lesta. Árið áð-
ur gengu þaðan 28 togarar og 9 línu-
veiðagufuskip, Það er mjög áberandi,
hve ört útgerðin minnkar frá Reykjavík,
og dregst til annara staða á landinu, t. d.
hefur togurum fækkað þar tvö siðustu
ár, um 6, og línuveiðagufuskipum um 7,
og er fyrirsjáanlegt að þessum skipum
muni fækka þar enn að mun á árinu
1933. Afli 79492 skpd. (1931:126531.1930:
157486).
Akranes, þaðan gekk 1 línuveiðagufu-
skip og 18 mótorbátar yfir 12 tonn,
er það lik skipatala og árið áður. Afli
18116 skpd: (13836). •
Hjallasandur, þaðan gengu 20 bátar,
af þeim voru 8 mótorbátar með þilfari,
minni en 12 tonn, er það sama bátatala
og árið áður. Afli 1977 (2779).
ólafsvlk, þaðan gengu 9 opnir trillu-
bátar, og er það 2 færri en árið áður.
Afli 1232 skpd. (1416).
Stykkisbólmur, þaðan gekk 1 línu-
veiðagufuskip, 2 vélbátar stærri en 12
lestir og 2 minni þiljaðir vélbátar og 13
trillubátar, er það nokkru minni báta-
tala en árið áður. Afli 2607 (2694).
Margir bátar stunduðu dragnóta-
veiðar úr veiðistöðvum Sunnlendinga-
fjórðungs, einkum yfir sumarið og
haustið, eftir að lögunum um dragnóta-
veiðar var breytt, samtvar skarkolaveiði
yfirleitt treg og því litið upp úr þeirri
veiði að hafa, enda verðið mjög lágt. Þó
varð þetta mörgum mikil hjálp í atvinnu-
leysinu, því hjá öllum fjölda sjómanna,
er enga atvinnu hægt að fá þann tima
árs. Allur skarkolinn var fluttur út is-