Ægir - 01.01.1933, Page 17
ÆGIR
11
Tafla 11. Síldveiðin 1932.
U m d æ m i: Saltað, tunnur Sórverkað, tunnur 3 e/s "3 •o 3 & ^ - (U A ~
Vestfirðir 10 366 4 347 167 534
Siglufjörður 87 754 73 118 262 844
Eyjafjörður og Raufarh. 32 389 40 777 100 332
Austfirðir 1033 485 ))
Samtals 1932 131 542 115 727 530 710
— 1931 101 557 110 406 569 801
- 1930 127 506 58 303 534 775
Auk þess var saltaó af millisíld og smásíld
í Norðlendingafjórðungi 1312 tunnur og 8837
tunnur i Austfirðingafjórðungi.
Þetta tóku íslenzkir útgerðarmenn til
greina og var mjög lítið saltað á lslandi
^yrir þann tíma. Aftur á móti var það
vitanlegt, að norsku skipin byrjuðuveið-
aí> strax og þau komu til landsins og þá
auðvitað til söltunar, því að notfæra sér
s>ldina á annan hátt var ekki um að
•seða. Þar sem tíð var mjög hagstæð um
þetta leyt4 og sild virtist vera nægileg
fyrir Norðurlandinu, má ganga út frá
Því að norsku skipin hafi verið búin að
salta allmikið af síld á undan íslending-
uui, enda var það kunnugt að þeir voru
búnir að senda til Svíþjóðar nokkuð af
sild fyrir þann tíma. Það er því ekki að
sjá að sænsku sildarkaupmennirnir hafi
sfaðið fast um þessa hótun sína, að
uiinnsta kosti keyptu þeir síldina af Norð-
uiönnum og íslendingum jöfnum hönd-
uni þegar síldin fór að berast þangaðað
haustinu, hvernig svo sem þeir hafa far-
að með að þekkja þá síld norsku
skipanna, sem veidd var fyrir 25. júlí.
‘ að var líka ekki i annað hús að venda
fyrir islenzka síldarflotann, þar sem hann
var útilokaður frá að selja síld sína í
bræðslu, þvi um þetta sama leyti var
verkfall við Ríkisbræðsluna á Siglufirði
og komust ekki sættir þar á, fyr en 12.
júlí, og þá með líku kaupgjaldi og verið
hafði árið áður, þó var sunnudagahelgin
færð niður í 24 tíma úr 36 timum, en
ekki gilti það þó fyrir aðra vinnu á
Siglufirði en Ríkisbræðsluna, og hélst 36
tíma helgin þar því áfram við aðra vinnu.
Einhverjar smávinnustöðvanir voru
á Siglufirði yfir síldartímann út af þessu
og ýmsu öðru, en þar sem þær stóðu
allar mjög stutt, verður þeirra ekki frek-
ar getið hér. H. f. Kveldúlfur í Reykja-
vík, starfrækti bræðslustöðvarnar á Hest-
eyri og Sólbakka, hafði félagið 7 togara
sína til að veiða fyrir stöðvar þessar, en
keypti mjög lítið af öðrum skipum. Far-.
ið var að starfrækja stöðvar þessar um
miðjan júlí.
Aftur á móti tók ekki bræðslustöðin
í Krossanesi til starfa fyr eníágústmán-
uði, sökum þess að samkomulag náðist
ekki fyr um kaup verkamanna þeirra, er
unnu í landi við verksmiðjuna.
Verksmiðjan á Raufarhöfn starfaði að
eins stuttan tima og fékk lítið af sild.
Steindór Hjaltalín útgerðarmaður frá
Akureyri, tók á leigu og starfrækti aðra
síldarbræðslustöð Goos á Siglufirði, sem
staðið hafði ónotuð undanfarandi.
Samtals tóku stöðvarnar á móli til
bræðslu 535 þús. hektólitrum og er það
heldur minna en árið áður.
Verðið fyrir bræðslusíldina var bjá
Rikisbræðslunni 3 kr. fyrir málið, 135
kg., hélzt það verð óbreytt allt sumarið
og er líkt eins og árið á undan, en þá
hækkaði verðið hjá Rikisbræðslunni lít-
inn tíma upp í 4 kr. málið. Aftur á móti
mun Krossanesverksmiðjan og Steindór
Hjaltalin, ekki hafa borgað nema 3 kr.
fyrir 150 kg.