Ægir - 01.01.1933, Qupperneq 21
ÆGIR
15
um óeðlilegrar samkeppni, sem svo illa
hafði farið með fiskverzlunina árið áður,
og sífelt iækkandi framboð þrýstu verð-
inu, sem þá var komið niður í 65 kr.
Þegar hér var komið sögunni, sáu út-
flytjendurnir sjálfir, sem jafnframt eru
fiskframleiðendur, að við svo búið mátti
ekki standa, enda munu bankarnir þá
hafa tekið í taumana, og var þá mynd-
að »Sölusamband íslenzkra fiskframleið-
enda«. Eru í stjórn þess
einn af framkvæmdastjór-
um helztu útflutningsfélag-
anna, Kveldúlfs, Alliance
og Fisksölusamlagsins
gamla. Auk þess sinn
bankastjórinn fráhvorum
bankanna, Landsbankan-
um og Útvegsbankanum.
Taldi Samlagið sig íbyrj-
un hafa yfir að ráða um
90°/o af þeim fiski, sem
þá var óseldur í landinu.
Strax eftir það að sam-
lag þetta var stofnað,
færðist ró yfir fiskverzl-
unina á ný. Verðið hækk-
aði strax úr 65 kr. í 75
kr. skpd. af sunnlenzkum
fiski, og upp í 80 — 85 kr,
af austfirskum fiski, og
hélzt þetta verð allt árið
út og fór þó heldur hækk-
andi upp í 78—80 kr. fyrir
sunnlenzkan fisk, þegar
kom fram í desbr.
Svo rólega gekk fisk-
salan eftir að Samlagið var
myndað, að allur ótti og
uggur fiskeigenda hvarf
°g var varla á fisksölu minnst úr því,
°g óþarfa eftirrekstur eða þvingnn um að
koma fiskinum frá sér, eins og oft á sér
stað, þekktist varla, enda hagaði Sam-
lagið mjög afskiþuninni þannig, að fisk-
urinn var tekinn á þeim stöðum, þar
sem verst var aðstaðan lil að geyma fisk-
inn. eða þar sem hafnir voru slæmarog
því erfitt að vetri til með afskipun.
Úegar kom fram undir áramótin mun
hafa verið farið að bera á því, að keppi-
nautar Samlagsins væru farnir að hjóða
út nýju framleiðsluna, með iægra verði
en Samlagið hafði haft, eða að tilraun-
ir mundu gerðar til að sprengja þessi
samtök, sem upphaflega voru bundin
við sölu framleiðslu-ársins 1932.
Samlagið sneri sér því til iikisstjórn-
Tafla III. Skýrsla um fiskútflutninginn 1931 — 1932
eftir innflutningsstöðum. (Aðeins heilir farmar eru taldir).
19 3 2 19 3 1
Innflutningsstaðir: Verkað kg óverkað kg. Verkað kg. Óverkað kg.
S p á n n :
Vigo 2144100 )) 725 000 ))
Pasajes 238 000 )) 100 000 ))
Santander 55 000 )) 150 000 ))
Coruna 98 750 )) 50 000 ))
Bilbao 9 638 580 100 000 8 729 050 20 000
Malaga 377 500 175 000 300 000 38 000
Sevilla 2 587 650 200 000 2 668 700 100 000
Alicante 450 000 )) 140 00U ))
Valencia 2 238 650 )) 1 380 000 ))
Barcelona og Tarrag. 10 694 700 )) 12 498 650 67 250
Samlals 28 522 930 475 000 26 741 4i 0 225 250
P o r t ú g a 1
Oporto 7 832 770 950 000 6 816 800 1 735 000
Lissabon 5 902 600 )) 3 542 390 ))
Samtals 13 735 370 950 000 10 359190 1 735 060
11 a 1 i a:
Genova o. íl 11 419750 8 166 900 14 943 350 8 586 900
G r i k k 1 a n d :
Piræus o. fl 688 550 1 598 250 )) 300 000
N o r e g u r : )) )) )) 900 000