Ægir - 01.01.1933, Síða 22
16
ÆGIR
arinnar, og fékk hana til að gefa' út
bráðabirgðalög, sem banna útflutning á
öllum verkuðum og óverkuðum fiski,
sem lagður er á land á íslandi eftir 1.
janúar 1933 til 1. apríl, nema stjórn
Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda
gefi samþykki sitt til sölunnar.
Það má ganga út frá því sem gefnu,
að fiskeigendum sé nú farin að skiljast
hin miklu hlunnindi, sem þeir hafa haft
af Samlaginu, því það er gefið, að hefði
Samlagið ekki myndast í vor á þeim
tíma, sem .það þá var gert, að fisksalan á
árinu 1932 hefði sízt farið betur en árið
áður. Það eru því margar miljónir, sem
Samlagið hefur fært ísl. fiskframleiðend-
um, svo að þegar maður horfir til baka
yfir liðna árið, er ekki hægt að segja ann-
að en að sala sjávarafurðanna hafi geng-
ið vei, og ef að þrengingar ársins 1931,
befðu ekki legið eins og mara á allri
útgerð, þá væri útvegurinn yfirleftt all-
vel settur.
Pað eru þessir tveir tiltölulega sam- .
stæðu atburðir frá árinu 1932, sem gera
það sérstaklega eflirminnilegt fyrir þá
menn, sem að sjávarútveginum standa.
Á annan veginn afnám Síldareinkasöl-
unnar og framtak það sem athafnafrels-
ið skapaði á því sviði, en á hinnveginn
stofnun Fisksölusamlagsins og samtök
þau, er það hefur myndað á grundvelli
félagslegra samtaka.
Verð á meðalalýsi hefur verið lægra
en árið áður.
Alls hefur útflutningur á fiski á árinu
verið, borið saman við undanfarandi ár:
193S af verkuðum fiski 59103080 kg.
óverkuðum 17762970 —
1031 af verkuðum fiski 58907120 —
óverkuðum 15640020 —
1030 af verkuðum fiski 51571620 —
óverkuðum 20722640 —
En að verðmæti til er fiskútflutning-
urinn í ár nærri 1 millj. kr. meiri en í
fyrra.
Far sem fullkomnar útflutníngsskýrsl-
ur eru ekki enn þá komnar fyrir árið
1932, Jæt ég fylgja hér til bráðabirgða,
fiskútflutninginn á árinu til einstakra
landa og staða. Skýrsla þessi nær að eins
yfir þann fisk, sem sendur er héðan í
heilum förmum með sérstökum skipum,
en auk þess er alltaf sent nokkuð af fiski
til útlanda með strandferða- og milli-
landaskipum, enda stemma ekki heild-
artölurnar við það, sem til er færtíkafl-
anum hér á undan.
Það er mjög eftirtektarvert og áber-
andi, hve útflutningi héðan til Barce-
lóna hrakar. og er það í samræmi við
það sem um getur í skýrslu fiskifulltrú-
ans, Helga Briem, í síðasta tölubl. Ægis.
Við verðum að hafa opin augu fyrir
samkeppni þeirri, sem við stöndum nú i
við Færeyinga um yfirráðin á þeim
markaði og leggja alla krafta fram til að
vinna aftur það, sem tapað er, áður en
orðið er um seinan.
Togaraveiði og ísfiskssala.
Veiði á togara, bæði á síldveiðum og
saltfiskveiðum, gekk vel á árinu. Þó var
vertíðarafli togaranna borið saman við
lóðaskipin, ekki eins góður og búast
mátti við, þegar tillit er tekið til hins
feiknamikla afla lóðaskipanna og allrar
aðstöðu. Verkföll voru engin í samhandi
við togaraveiðarnar og kaup hélzt að
mestu leyti óbreytt frá því sem áður var.
Einstaka togari byrjaði saltfiskveiðar
snemma í marzmánuði og hættu svo
aftur um tíma, því veiði var treg, en
yfirleitt byrjuðu togararnir ekki veiðar
fyr en síðast í marz, eins og tafla IV ber