Ægir - 01.01.1933, Qupperneq 27
ÆGIR
21
stærstu útgerðarliðum bátaútvegsins, hef-
ur nú mikið færst nær sanngirni en áð-
ur var, enda er nú almennt brúkuð meiri
gætni um alla eyðslu en var. Útgerðar-
kostnaður hefur því yfirleitt minnkað
allverulega á ýmsum sviðum.
Sala sjávarafurða hefur yfirleitt farið
sæmilega úr hendi á árinu, og birgðir
eru hvergi meiri en svo að gera má sér
fyllstu vonir um, að óeðlilegt verðfall
þurfi ekki að verða af þeim ástæðum.
Þungir tollar og skattar, ásamt skuld-
um undanfarinna ára, sérstaklega ársins
1931, er sá myllnusteinn, sem útgerðin
hefur að burðast með og alveg óséð enn,
hvernig henni muni takast að losna við
hann.
Beitubirgðir.
Samkvæmt þeim skýrslum, sem Fiski-
félagið hefur aflað sér um frystingu
beitusíldar á árinu (taflaVII), hefur ver-
ið fryst mikið minna af beitusíld en ár-
ið áður, og stafar það af þvi, að hvergi
nærri var notuð upp sú síld, sem
fyrir var árið á undun. Birgðirnar, sem
eftir lágu um vorið og það sem ónýtt
varð og kastað var, hefur áreiðalega ver-
ið eins mikið og mismunur á frystingu
þessara tveggja ára. Haldi þvi útgerðin
áfram á sömu sparnaðarbraut og síðast-
liðið ár, að spara beitu eftir megni eins
og annað útgerðinni tilheyrandi, þá þarf
ekki að óttast beituþurð. Auk þess eru
Austfirðirnir fullir af sild og má búast
við að eitthvað verði fryst þar og flutt
hingað til Suðurlandsins, ef þörf verður
fyrir meiri beitusíld en hér ertil. Erþað
nær sanni, heldur en vera að kaupa beitu-
sild frá Noregi, eins og stundum hefur
átt sér stað, þó við séum að kafna í síld
hér heima að sumrinu og i vandræðum
með að koma henni í eitthvert verð.
Við erum annars einkennilegir búmenn
Tafla VII. Skýrsla um frystingu beitu-
síldar (kolkrabbi meðtalinn)
árin 1930-1932.
Fjórðungar 19 3 2 ker. 19 3 1 kg. 19 3 0 kg.
Sunnlendinga . 523 600 156 000 ))
Veslfiröinga . . 324 000 746 000 505000
Norðlendinga , 1.567 000 2 545 300 2.358 580
Austfiröinga . . 171 300 340 200 485 460
Samtals 2 585 900 3 787 500 3 349 040
þar sem við leggjum hátt útflutnings-
gjald á ferska síld, sem flutt er út í is
(sama og á saltsíld), en flytjum inn toll-
frjálsa síld frá öðrum þjóðum. Alþingi
ætti að fara að athuga það, hvort að
við gætum ekki okkur að meinalausu
lagt toll, sem gjarnan mætti vera nokk-
uð hár, á innfluttan fisk og síld, þar sem
vitanlegt er að við höfum sjálfir nóg af
þeirri framleiðslu í landinu.
Umbætur.
Á sviði fiskveiðanna, eða á mannvirkj-
um, sem standa í sambandi við þær, hafa
ekki verið miklar á árinu.
I Grindavík var unnið að áframhaldi
á bátabryggjunni, eins og áður er tekið
fram.
Hafskipabryggja byggð í Keflavik að
mestu úr járni.
í Hnífsdal var unnið að sldpabryggju,
sem verið er að byggja inn á svo kölluð-
um Völlum.
Á Vopnafirði var byrjað á bryggju-
byggingu.
1 Vestmannaeyjum var Básaskersbryggj-
an byggð og var farið að nota hana
um haustið. Bryggja þessi er byggð úr
samangreyptum járnplötum og fyllt upp
að innan eins og Reykjavíkurbryggjurn-
ar síðustu.