Ægir - 01.01.1933, Blaðsíða 29
ÆGIR
23
má eftir útflutningi þeirra, sem hefur verið
mikið meiri en í fyrra, þá ættu birgðir
að vera þar mjög í hófi.
Eins og ég hef áður tekið fram í ýms-
um greiniim mínum í Ægi og áramóta-
skýrslum, er okkur það mjög bagalegt,
að geta ekki fengið eftir hendinni skýrsl-
ur um fiskframleiðslu Færeyinga, en
margir hafa litið svo á, að framleiðsla
þeirra væri smávægileg og gætti ekki svo
mikið á heimsmarkaðinum, en svo er
ekki. Eftir þeim upplýsingum sem sendi-
herra Dana hér hefur látið Fiskifélaginu
i té, hefur fiskframleiðsla Færeyinga und-
anfarandi verið :
1932 28000 smál.
1931 30500 —
1930 31800 —
1929 27000 —
Þvi miður er ekki hægt að sjá hvort
að hér er miðað við verkaðan flsk, eins
•og við gerum í okkar skýrslum, eða hvort
miðað er við fullsaltaðan fisk, en mér
þykir líklegra að svo sé.
Landhelgisgæzlan.
Hana önnuðust af íslendinga hálfu á
árinu aðallega varðskipin »Óðinn« og
»Ægir«. Auk þess var »Þór« við landhelgis-
gæzlu fyrir Suðurlandinu fyrri hluta árs-
ins, jafnframt björgunar- og eftirlitsstarfi
sínu við Vestmannaeyjar, meðan vertíðin
stóð yfir.
Síðari hluta ársins voru þó varðskipin
»Óðinn« og »Ægir« sjaldan samtímis við
gæzluna, heldur skiptust þau á við starf-
ann. Það má því segja, að mikinn hluta
ársins hafi landhelgisgæzlu að eins verið
haldið uppi af íslendinga hálfu með einu
skipi.
Af Dana hálfu önnuðust varðskipin
»Fylla« og »Hvidbjörnen« gæzluna til
skiptis eins og árið áður. Var »Fylla« hér
þann tíma, sem »Hvidbjörnen« var við
Grænland, en fór til Danmerkur þegar
hann kom hingað aftur.
Enn fremur tók danskur eftirlitsbát'ur
»Maagen« einn togara að ólöglegum veið-
um hér við land á leið sinni frá Dan-
mörku til Grænlands, en bátur þessi var
sendur þangað til eftirlits með fiskiveið-
um þar.
Þá var einn ísl. mótorbátur Jón Fínns-
son við gæzlu fyrir Vesturlandi yfir
sumarmánuðina, en gæzlu með liku sniði
hefur verið haldið þar uppi nokkur und-
anfarandi sumur, og befur þótt sýna
góðan árangur.
Það stingur því mjög í stúf hve há-
værar kvartanir hafa komið frá Vestur-
landi síðastliðið sumar út af yfirgangi
togara, einkum þó frá Arnarfirði, enda
er sumarpeiði stunduð þar mest og ein-
göngu af smábátum.
Alls hafa 8 togarar verið teknir á árinu
fyrir ólöglegar veiðar, og er það rúmlega
helmingi lægri tala en árið áður.
Af skipum þessum hefur »Ægir« tekið
4, »óðinn« 1, »Fylla« 2 og »Maagen« 1.
Borið saman við undanfarandi ár, þá
hefur landhelgisgæzlan verið i veikasta
lagi, og væri æskilegt, að hægt væri að
bæta svo úr því, að jafnan væru, að
minnsta kosti, tvö ísl. varðskip samtímis
við gæzluna.
t*á læt ég jafnframt fylgja hér með
viðbótarskrá yfir þær breytingar, sem
gerðar hafa verið í Hæstarétti á árinu,
á sektar-upphæðum þeirra skipa, sem
að áður hafa verið dæmd.
Eins og í undanfarandi skýrslum mín-
um, eru að eins talin hér ,þau skip, sem
dæmd hafa verið í undirrétti eða Hæsta-
rétti, en sleppt þeim skipum er varð-
skipin hafa tekið til hafnar fyrir ímynd-
uð brot, og sýknuð hafa verið í undir-
rétti, eða þau skip, sem sleppt helur
verið með áminningu.