Ægir - 01.01.1933, Side 31
ÆGIR
25
Skýrsla
erindrekans í Vestfirðingafjórðungi
ágúst—desémber 1932,
Jafnframt og birt er aflaskýrsla síð-
astliðins árs, skal hér gefið yfirlit um
aflabrögðin síðari hlut ársins og farið
nokkurum orðum um afkomuhorfur í
fiskveiðiplássunum.
í Flatey á Breiðafirði hefur nú komið
meiri fiskur á land en áður, undanfarin
10 ár. Eins og getið er í síðustu skýrslu
minni var þilskipið »01ivette« frá Pat-
reksfirði keypt þangað í vor. Aflaði skip-
ið mjög vel, fékk um 500 skpd. fiskjar.
Auk þess var og flutningabáturinn »Kon-
ráð« þar á færaveiðum fyrri hluta sum-
ars, svo og fáeinir smábátar.
1 Víkum, einkum á Látrum, var all-
góður sumarafli, en haustróðrar að vanda
sama og engir.
Á Eyrum (Patreksfjarðarkauptúni) var
smábátaaflinn mjög lélegur, eins og á
vorvertíðinni. Vélbátarnir þrir, sem á
færaveiðar gengu, öfluðu fremur illa.
Aftur varð aflinn á togarann »Gylfa«
meiri en nokkru sinni áður. Hann fékk
4500 skpd. yfir vertíðina. Þykir mér
sennilegt að hann hafi sett met i ár á
saltfiskveiðunum.
1 Tálknafirði var aflalaust að kalla
mátti í sumar, og voraflinn mjög rýr,
eins og segir í fyrri skýrslu minni.
Haustafli mjög lítill.
Sama er að segja um Önundarfjörð.
Einungis annað færaveiðaskipið, »Geys-
ir«, stundaði veiðar frá í miðjum júní
til ágúsíloka, og aflaði að vanda prýðis
vel, fékk um 300 skpd. yfir þenna tíma.
Frá Þingeyrum gekk nú einungis vél-
báturinn »Hulda« á færaveiðar, aflaði
vel, en hætti um miðjan ágúst. Fáeinir
smærri bátar voru og á fiskveiðum í
firðinum af og til. Línubatarnir stund-
uðu síldveiðar á Siglufirði.
Á Flateyri var sama og ekkert um
sumarróðra, tvö smá færaskip stunduðu
þaðan fiskveiðar og fékk hið hærra um
230 skpd. Haustróðrar hófust þar þegar
í byrjun október, og aflinn verið seldur
í ís í »Súðina«, og nokkra togara fram-
an af hausti, en ekkert saltað.
Frá Suðureyri í Súgandafirði voru
fiskveiðar nokkuð stundaðar síðari hluta
sumars, og aflaðist all vel í ágúst og
september. en miður í haust.
Bolvíkingar og Hnifsdælir stunduðu
sumarróðrana einungis í ígripum, og fáir
bátar. Framan af hausti var fiskur seld-
ur til togara í is, en saltað í nóvember
og desember. Var góður afli, einkum í
Bolungavik, í byrjun desember.
Hér á Isafirði voru fiskveiðar á færi
stundaðar af einu smá-skipi, Birninum,
er fékk allgóðan afla. Nokkrir smábátar
voru og á fiskveiðum, en afli þeirra fór
að mestu til matar í bæinn. Síldveiðar
voru nú lítið stundaðar. Frystihúsin
tóku einungis um 180 smálestir alls, en
440 smálestir 1931. Saltað var til útflutn-
ings um 1600 tunnur af stórsíld af vél-
bátnum »Sæbirni, er jafnframt lagði síld
i frystihús hafnarsjóðs. — Af smásíld
voru saltaðar rúmar 300 tunnur.
Stærri vélbátarnir héðan voru allir að
sildveiðum á Siglufirði, og öfluðu prýðis
vel. Þykir mér rétt, að setja hér afla-
feng þeirra, og jafnframt i svigum afl-
ann 1931:
Gunnbjörn.. 14500 tunnur (11600).
Ásbjörn .... 14000 (8720).
Valbjörn ... 12000 (9280).
ísbjörn 11500 (10270).
Auðbjörn ... 9800 (8440).
Vébjörn .... 9300 (10020).
Sæbjörn .... 9000 (8790).
Svalan 7500 (5500).
Perey 6500 (8200).