Ægir - 01.01.1933, Side 34
28
ÆGIR
Á Þingeyri eru atvinnuhorfur nú betri
en nokkru sinni áður. Þaðan hafa gengið
tvö línuveiðagufuskip í ár, og hið þriðja
bætist nú við um áramótin. Það er línu-
veiðabáturinn »Hafþór«, er þeir Júlíus
Guðmundsson og Steinþór Benjamínsson
hafa keypt með tilstyrk ýmsra Þingeyr-
inga. — Allstór vélbátur, (um 18 smál.)
var keyptur þangað síðastliðinn vetur
og hélt út þaðan fram á vorið. — Auk
þess sem aflaðist í Dýrafirði, var og
verkað á Þingeyri um 1400 skpd. af sunn-
lenzkum fiski. Mátti segja að kauptúnsbúar
hefðu næga atvinnu allt árið sem leið.
Á Flaíeyri hefur útvegur aukist mikið
siðari árin, og ársaflinn hefur þar aldrei
meiri verið en nú. Áður fyrr var þar
lítt stundaður sjór á vetrarvertíð, en tvö
síðastliðin ár hefur verið þar afbragðs
vetrarafli. Auk þess er svo síldarverk-
smiðjan á Sólbakka, sem veitir talsverða
atvinnu. — Atvinnuhorfur þar eru yfir-
leitt góðar.
1 Súgandafirði er svipaður útvegur og
áður. Bátar þeir, sem seldir voru við
glaldþrot, aðal-útgerðarmannsins lentu
allir hjá þorpsbúum á Suðureyri. ó-
heppni og ólag, vafalaust að miklu frá
lánsstofnunarinnar hendi, fylgdi því hjá
bátaeigendum, að vetraraflinn og vorafl-
inn að miklu leyti var seldur óverkaður
og blautur, fyrir tiltölulega lágt verð.
1 Bolungavík og Hnifsdal virðist út-
vegur heldur vera að blómgast aftur, að
minnsta kosti er þar ekki um afturför
að ræða síðasta ár.
Vélbátur, 18 lesta, var keyptur til
Hnífsdals af Ben. Steindórssyni í fyrra-
vetur og hefur síðan haldið þar úti, auk
báta þeirra, sem þar voru fyrir. Margir
trillubátar, sumir úr Grunnavík og úr
Mið-Djúpinu hafa haldið þar úti á vor-
vertiðinni. Smábátar úr Arnardal eru og
taldir þarna með.
I Bolungavik eru og fleiri bátar á
vetrarvertíð nú en í fyrra, Bátar úr búi
Péturs heitins Oddssonar lentu hjá sjó-
mönnum þar.
Útvegsmenn, eða bátaeigendur í fram-
antöldum veiðistöðvum, munu yfirleitt
hafa staðið vel í ístaðinu þetta ár, einkr
um þeir, sem selt hafa fisk sinn fulí-
verkaðan. Þó er sama sagan með smá-
vélabátana hér nærlendis og á Vestfjörð-
unum, að þeir hafa brugðist tilfinnan-
lega, vegna þess að fiskur gekk hér lítt
á innmið fyrr en um það vertíð lauk
í vor.
Vetrarvertíðin var stórum betri en vor-
vertíðin, og fiskverð þá ofurlítið hærra.
Gera má hiklaust ráð fyrir því, að allir
þeir sem við fiskkaup hafa fengist í ár,
hafi hagnast vel, en það hefur gengið út
yfir fiskimennina. — Eitt ár má máske
við það una, að blautfiskverðið reynist
miklu hærra hlutfallslega, en verð á
verkuðum eða fullsöltuðum fisld, vegna
þess að blautur fiskur hefur verið keypt-
ur of háu verði undanfarið, einkum þó
stðastliðið ár, og skuldir því meiri og
minni á fleslum fiskkaupendum. En því
má ekki gleyma að fiskimennirnir sjálfir
eru hér aðiljar og eigendur, og að blaut-
fiskverðið í framtíðinni verður að standa
í hlutfalli við söluverð verkaðs fiskjar
til útlanda.
Aflinn i ísafjarðarkaupstað er á skýrsl-
unni talinn rúmiega 3100 skpd. minni
1932 en árið áður. En útfluttur báta-
ísfiskur nemur um það þeirri skip-
pundatölu, sem sést annarstaðar í skýrsl-
unni.
Óhætt er að fullyrða að hagur vélbáta-
útgerðarinnar hér í bænum hafi vænkast
nokkuð á árinu. Það er síldveiði stærri
bátanna á Siglufirði, sem heldur útgerðinni
gangandi nú, og reyndar oftast áður.
Þorskveiðarnar á bátum þessum bera