Ægir - 01.01.1933, Side 35
ÆGIR
29
sig aðeins, og það þegar beztlætur. Sam-
vinnufélag ísfirðinga, sem er aðal-útgerð-
arfélag bæjarins, hefur bætt hag sinn
vonum framar síðastliðið ár.
Félag þetta var stofnað af vanefnum
fyrir 5 árum; fyrri bátarnir fimm komu
í árslok 1928 og hinir tveir ári síðar. Það
hefur nú lent í hinni hörðustu kreppu
1931. Þessa eldraun hefur þó félagið
staðist til þessa. Vitanlega skuldar það,
auk annara lausaskulda, ríkissjóði rúmar
50 þúsund krónur, er það mun þó eitthvað
grynna á við áramótin. Það er nær allt
vextir og afborganir af stofnskuldum fé-
lagsins, lánum á bátunum sjö, sem eru
i sænskum banka, og sem ríkissjóður
er í ábyrgð fyrir. Hygg ég að fá fyrir-
tæki í þessu landi hafi á þessum árum
getað grynnkað á stofnskuldum sinum,
eða jafnvel ekki greitt af þeim vexti,
svo það sannar ekki hvort félagið fái
haldið velli í framtíðinni. í byrjun þessa
árs mun félagið sjálft greiða umsamdar
afborganir og vexti af sænska láninu.
Það, að félag þetta hefur haldið velli
hinga.ð til, þakka ég fyrst og fremst
samvimwskipalaginu, sem fylgt hefur
verið í aðalatriðum, þótt ekki hafi enn
tekist eða þótt hagkvæmt að fylgja þvi
út í yztu æsar — og samheldni félags-
oianna og skilnings þess verkafólks og
sjómanna yfirleitt á félagsskapnum, þótt
vitanlega nokkuð hafi á þetta brostið í
einstökum atriðum. En það leiðir af
skipulagsháttum þess, sem knýr menn
til meira félags samstarfs og skilningi á
högum hvors annars. Ég er þess fullviss,
að almennt samlagsfélag eða hlutafélag
Wundi, undir sömu skilyrðum og sam-
vinnufélagið, hrunið í rústir eða gliðn-
að sundur.
í Álftafirði er útvegur svipaður og áð-
ur. og engin breyting þar á útgerðar-
uiönnum, sem munu hafa allgott ár nú.
— Geta má þess hér, að það var rangt
í skýrslu minni í 5. blaði Ægis um
vetraraflann í Álftafirði, að Árni Guð-
mundsson væri hlutahæstur með 800
krónur. Það var Bjarni Hjaltason með
1030 kr. hlut, en Árni Guðmundsson
hafði 900 kr. hlut.
Smá-veiðistöðvarnar i Mið-Djúpinu
hafa nú verri afkomu en áður.
Sama er að nokkru leyti að segja um
Sléttuhrepp, (Aðalvík og Hornstrandir).
Þó var góðfiski þar um tima í vor.
Gjögur er varla teljandi sem verstöð,
og iiskiveiðar einungis stundaðar þar af
og til sumarið og fram á haustið.
1 Steingrímsfirði reis upp allmikill út-
vegur fyrir nokkrum árum, að nokkru
leyti í sambandi við hlutafélagið Drangs-
nes, og aðkomubátar stunduðu þar ekki
fáir veiðar. árin 1928—29. Þurrabúðar-
menn, einkum við norðanverðan fjörð-
inn, eignuðust þá margir trillubáta, en
mjög rýr afli, einkum 1931, hafði valdið
mikilli skuldasöfnun hjá mönnum þess-
um. Síðastliðið ár hefur væntanlega
nokkuð ræzt úr fyrir þeim, þvi afli var
mjög góður á Steingrímsfirði síðari hluta
sumars og í haust, eins og áður er getið.
Hér hefur með nokkrum orðum verið
stiklað á ástandi og horfum i sjávar-
plássum fjórðungsins. Til þess að gera
þessu máli enn betri skil, þarf skýrslur
og skýringar, sem ekki liggja lausar fyrir,
enda ekki rétt að gera að umtalsefni
einkahagi manna, nema i almennu yfirliti.
Fiskimjöls-verksmiðjan á Torfunesi
hér við bæinn, befur síðastliðið ár fram-
leitt 000 smálestir af fiskimjöli. Björgvin
Bjarnason hefur einnig framleitt 550 smá-
lestir fiskimjöls. Hann hefur í ár aukið og
endurbætt vélar sínar og hús á Stakkanesi.
Unnið var i sumar nokkuð að Hnífs-
dalsbryggjunni, og landssvæðið við hana
lagað. Er bryggjan vist örugg það sem