Ægir - 01.01.1933, Side 39
ÆGIR
33
Hvað á nú að reyna? Þeirri spurningu
læt ég ósvarað að sinni, en vera mætti,
að ýmsir lslendingar væru þeir, að bjálpa
vildu til þess með sparifé sinu, að reisa
slíka sjóðsstofnun og hjálpa dugandi
mönnum, sinum líkum, til þess að leggju
stein í bygginguna. Eg veit fullvel, að
þetta er útúrdúr, — úr skýrslu — en ég
tel að hann muni þó afsakanlegur.
Ekki veit ég til að hér verði byggðir
nema einn vélbátur (ca. 14 lesta), vel
um vandaður á allan hátt, og svo nokkr-
ir opnir vélbátar, hingað og þangað i
fjórðungnum. — En hug munu menn
hafa á, að láta ílestar fleytur ganga til
veiða næsta vor og sumar, sem á annað
borð eru til þess færar.
Síðasta ársfjórðung hafa engin skip
eða bátar verið keypt frá útlöndum, það
ég til veit, nema línuveiðarinn »Golden-
ray« frá Englandi. Skipið er talið 13 ára
gamalt, tréskip, snoturt og sterklegt um
80 Regtn. og hefur 260 ha. kolavél. Er
þvi ætlað póstferðir, vöru- og farþega-
flutningur, svipað og flóaferðum hefur
verið hagað norðanlands undanfarið.
Tvö vélskip héðan af Akureyri, eru
þegar farin til veiða fyrir Suðurlandi og
4 vélskip eru nú á förum til Vestur-
landsins. Ef til vill fara fleiri siðar, en
ekki mun það afráðið enn.
t*á ætla ólafsfirðingar o. fl. af Eyja-
firði, að fjölmenna til Siglufjarðar og
halda þar úti til vors ef skilyrði verða
góð. Tveir vélbátar undir 12 tn. héðan
eru þegar farnir til veiða við ísafj.djúp.
Millisildarreitingur var hér á Eyjafirði
í október og fram í byrjun desember.
Munu hafa fengist um 540 tunnur alls.
Seldist þessi síld fyrir 50 — 60 kr. tn. —
Smásíldarkræða fekkst eitt skipti í fyrir-
drátt innan við Laufásgrunn, í.haust.
Fekkst úr þeim drætti 1 tn. af millisíld,
mestallt annað var tekið til áburðar, að
eins örlitið notað til beitu á staðnum. —
Hafsíldar hefur ekki orðið vart i haust,
hvorki á Eyjafirði né annarsstaðar þar
sem ég hef til spurt.
Tvö skip færeysk, sem héldu tjl við
Langanes i sumar, fiskuðu í félagi og
flutti annað skipið fiskinn ísvarinn til
Englands, en hitt skipið fiskaði á með-
an í salt og seldi þann fisk að mestu til
Þórshafnar. Fá fiskuðu skip Samvinnu-
félags sjómanna, hér á Akureyri, að
nokkru leyti til útflutnings í is og fór
gufuskip þeirra wÞormóðura nokkrar
ferðir til Englands, en salan gekk fremur
illa og í haust varð félagið gjaldþrota.—
Tók þá Akureyrarbær »Formóð« á leigu.
Er hann búinn að fara tvær ferðir með
kældan fisk til Englands, og hefur selt
dável.
Um ásigkomulag deildanna i fjórðungn-
um, er ekki neitt nýtt að segja. Það er
svipað og verið hefur. Meðlimatalan hef-
ur hækkað litið eilt, bæzt til muna við í
sumum deildunum, en aftur fækkað í
öðrum, af ýmsum orsökum. Eghefierð-
ast nokkuð um fjórðunginn þetta ár og
haldið eina 8 fundi í deildununum. Mest
hafa verið rædd innandeildarmál á hverj-
um stað, eins og venjulega, en auk þess
ýmislegt almenns efnis, svo sem um hag-
kvæmar ráðstafanir til beituútvegana, þar
á meðal um frystihúsin og verðfagþeirra,
en sérstaklega varð víðast tíðræddast um
söluhorfur og sölufyrirkomulag á afurð-
unum í framtíðinni. Er það og að von-
um, því þar veltur mest á.
Eg hef þetta ár, eins og að undan-
förnu, staðið í tíðu símasambandi við
flestar fiskifélagsdeildirnar og nokkra
einstaka menn í sambandi við það, skrif-
að talsvert mörg bréf ogyfir höfuð reynt
að gefa þær upplýsingar sem ég hefget-
að og aðstoða eftir megni, þegar þess
hefur verið óskað.