Ægir - 01.01.1933, Qupperneq 41
ÆGIR
35
allan vertíðartfmann og við heldurlægra
verði en undanfarin ár. Lifrarsala og
beina sæmileg og fiskverð gott, mikið
betra en búist bafði verið við. — Síldar-
aflinn mikill á sumrinu og salan eftir
vonum, úr þvi sem komið var áður.
Millisildarafli lítill, en seldist prýðilega.
Má því að öllu samtöldu segja, að af-
koman sá yfirleitt allgóð á árinuogbetri
en áhorfðist í byrjun þess. Tíðarfar var
lengstaf allgott, en þó frá byrjun síðasta
haust óstöðugt og því lítið um róðra,
nema helzt frá Siglufirði og þó mjög
stopult. — Starfsemi Fiskifélagsdeildanna
í fjórðungnum heldur áfram i líku horfi
og áður og fer að minnsta kosti ekki
hnignandi.
Læt ég svo þessari lokaskýrslu ársins
endaða og leyfi mér að óska Fiskifélagi
Islands og stjórn þess allra heilla, á ný-
byrjuðu ári.
Akureyri, 7. janúar 1933.
Páll Halldórsson.
Skýrsla
erindrekans í Austfirðingafjórðungi
frá 1. júlí til 1. okt. 1932 og ársyfirlit.
Þegar komið er fram í októbermánuð,
er þorskveiði venjulega hætt að mestu í
flestum hinna smærri veiðistöðva. Haust-
afli hefur stundum verið nokkur fyrir
Austurlandi. Hefur þá ýmist veiðst á
hinum syðri fiskimiðum — nálægt Hval-
bak eða í svonefndri Kistu útaf Norð-
firði og Seyðisfirði. Að þessu sinni var
veiði lílil á hinum syðri fjörðum, enda
mjök litið stundað. Aftur á móti var á-
gætur afli í október og nóvember útaf
Norðfirði og Seyðisfirði. Stunduðu Norð-
fjarðarbátar nokkuð þorskveiði á þeim
tima, en Seyðfirðingar minna, voru farnir
að fást meira við síldveiði, sérstaklega
eftir að kom fram i nóvembermáuuð.
Mestan aflann sóttu Norðfirðingar 30—40
sjómílur frá landi, en þó var talsverður
fiskur nær á grunnmiðum og eftir að
síldin gekk í firðina, kom þar einnig
þorskur. Nokkrir menn á Norðfirði og
Mjóafirði stunduðu þá flotlínur og fisk-
uðu oft vel. Yar það mest vænn þorsk-
ur, sem þeir veiddu. Fiskurinn sem veidd-
ur var í haust á Norðfirði, var yfirleitt
mjög stór þorskur og feitur. Hef ég
aldrei séð jafnvænni fisk, en þann sem
Norðfirðingar sóttu út í grunnhallið, eða
30—40 sjómílur frá landi og öfluðu þeir
þá 20 skippund í sjóferð og þar yfir. Á
Bakkafirði var farið á sjó með haldfæri
í október og veiddist þar vel, mest stór
þorskur.
Dragnótaveiði.
Lítið hefur verið veitt með dragnót
fyrir Austfjörðum af Islendingum á þessu
hausti. Mun tvennt aðallega hafa valdið
því, að Austfirðingar hafa lítið stundað
þessa veiði. Hið fyrra er hin hörmulega
útkoma. er varð á útflutningi á ísvörð-
um fiski frá Austurlandi í fyrrahaust —
þegar veiðendur fengu ekki grænan eyri
fyrir veiði sína — og þó mun aðalástæð-
an vera sú, að eigi hefur verið hægt að
koma fiskinnm ísuðum á markaðinn.
Var hugmynd margra, að Fossarnir
mundu fást til að koma við á Aust-
fjörðum á útleið, síðari hluta ársins,
þannig, að tvær ferðir yrðu í mánuði
hverjum til Englands, en úr því hefur
ekkert orðið. Meðan samgöngur eru ekki
betri, en nú er milli Austfjarða og út-
landa, er dragnótaveiði dauðadæmd at-
vinnugrein fyrir Austfirðinga, en að því
kem ég síðar.
Útlendingar hafa verið mun færri við