Ægir - 01.01.1933, Blaðsíða 43
ÆGIR
37
Fitumagn.
Fitumagn síldarinnar var mjög mis-
jafnt. Mældist 17—19% fyrst þegar fór
að veiðast. Þó var smærsta sildin magr-
ari. Annað var það svo, að þegar síldin
hafði legið í fjörðum nokkurn tíma, þá
fór hún að megrast, en allt af voru nýjar
göngur að koma og reyndist hún þá
feitari, eða hafa svipað fitumagn 17—19%.
Þó kom fyrir að fitumagn var yfir 20%.
Magarsta síldin, sem ég mældi á Norð-
firði rétt fyrir jól, var 11%, en þá valdi
ég úr mögrustu sildarnar, sem ég fann.
Annars reyndist fitumagnið ávallt yfir
15%, nema af smærstu síldinni, hún var
um 15%, en af henni var lítið saltað.
Skýrsla um saltaða, sérverkaða og frysta
sild á Austurlandi, haustið 1932:
Saltað Sérverkað Fryst
Seyðisfjörður .... 4694 624 259
'Norðfjörður 2856 70 150
Eskifjörður 140 15 98
Reyðarfjörður. . . . 290 » »
Fáskrúðsfjörður . . 104 44 25
Samtals 8084 753 523
Um áramót er útflutt 4601 tunna,
mest til Kaupmannahafnar. Nokkuð af
síldinni- fer þó til Þýzkalands gegnum
Kaupmannahöfn, en hve mikið það er,
er ekki unnt að segja um enn þá. Sildin,
sem út er flutt, var mest flutt út i des-
ember með fárra daga millibili. Hefur
hún þvi komið til Kaupmannahafnar
nærri samtímis öll og er auðsætt hve
þetta er fráleit ráðstöfun. Óhentugar
samgöngur eru aðalorsök þessa og skipu-
lagsleysi.
Síldarmat.
Þegar Síldareinkasala íslands var af-
numin, féll niður mat á síld, en það
heyrði undir hana. Síðasla Alþingi lauk
störfum, án þess að setja nokkur lög um
mat á síld. Ástandið er því þetta: Hver
maður hefur leyfi til að verka sild,
hvernig sem hún er, á hvern hótt sem
hann vill og senda hana hvert sem hann
vill og hverjum sem er. Get ég ‘ ekki
betur séð, en að Alþingi hafi skilið við
sildarmálin með nokkurri léttúð, þar
sem Síldareinkasalan er afnumin, án þess,
að Alþingi láti nokkurn stafkrók frá sér
fara er kveði á um skipulag þessara mála.
Að láta ekki fara fram mat á þessari
vörntegund, er greinilegt spor aftur á bak,
þar sem nú er yfirleitt keppt að því um
alla vöru, að vanda hana sem mest.
Vonandi setur næsta Alþingi að minnsta
kosti lög um mat og flokkun á síld og
er þá mikils um vert, að það mat verði
svo fullkomið, sem framast eru tök á.
1360 körfur voru fluttar út af isvarinni
síld með enskum tógurum. Keyptu togar-
arnir síldina. Um sölu á henni hefur
ekki frézt enn þá.
Einstakar veiðistöðvar.
Skálar. í síðustu skýrslu minni ritaði
ég nokkuð um Skála og útveginn þar.
Af vangá féll kafli úr því, sem um Skála
var sagt. Vona ég að þessi leiðrétting
komi í »Ægi«, og hef ég þá ekki miklu
við þáð að bæta, sem þar er sagt. Þó
vil ég geta þess, að aðgerð sú, sem gerð
var við varnargarðinn þar í haust, hefur
staðið og lítur út fyrir, að þaö verk komi
að tilætluðum notum: eða nú muni lend-
ingin varin fyrir grjótburði, en þá er eftir
að ryðja i burtu öllu því grjóti, er áður
var komið í vörina og er það mikið verk.
Vóeri æskilegt, að Skálabúar gætu fengið
stuðning einhversstaðar frá til þeirrar
aðgerðar.
Gunnóljsvík. Eins og nú standa sakir,
er tæpast að ræða um Gunnólfsvík, sem
útgerðarstað. Skilyrði fyrir útgerð virð-
ast þó góð þarna, ef einungis væru gerðar
nokkrar lendingarbætur.