Ægir - 01.01.1933, Page 45
ÆGIR
39
útílutningshöfn, því á haustin veiðist koli
og aðrar fisktegundir hentugar til út-
flutnings í ís, á miðunum nálægt Vopna-
firði. Sveitin er vel fallin til (landbún-
aðar) landbúskapar, svo að íbúarnir þyrftu
ekki að treysta á sjóinn eingöngu. —
Virðist þarna vera skilyrði fyrir hvort-
tveggju: sjávarútveg og landbúnað. —
Upplýsingar um Bakkaíjörð og Vopna-
fjörð, hef ég fengið hjá Einari Runólfs-
syni, stöðvarstjóra á Vopnafirði.
í þessum veiðistöðvum, sem nú hafa
verið nefndar, er aðallega veitt á sumrin.
Hafa grunnmiðin við Norð-Austurland
reynst aflasælli á sumrin, en fiskimiðin
út af syðri fjörðunum. Gæti því komið
til mála, að menn af syðri fjörðunum
stunduðu veiðar frá þessum höfnum yfir
sumarmánuðina. Skilyrði fyrir því, að
svo geti orðið, eru bættar samgöngur
innan fjórðungsins.
Borgarfjörður. Á Borgarfirði eru 3
opnir vélbátar og 3 árabátar, sem gerðir
hafa verið út síðastliðið ár. Sjósókn hafa
menn mest í hjáverkum, enda er höfnin
slæm, þar sem þorpið er, en öllu betri
við fjörðinn sunnanverðan í svonefndri
Hellisfjöru. Landbúnaður er aðal-atvinna
manna á Borgarfirði, enda er sveitin
grösug og landið vel fallið til ræktunar.
Seyðisfjörður. Á Seyðisfirði hefur tals-
verð þorskútgerð verið í ár. Vélbátar
oru þar all-margir, en sumir af þeim
eru litlir og gamlir, og mundi því þörf
endurnýjunar á bátunum. Annars mun
útkoma þorskútgerðar hafa verið sæmi-
leg á Seyðisfirði í ár. Sildveiði hefur þar
verið mikil í haust og var saltað yfir
5000 tunnur um áramót. Hefur síldveiðin
f fyrra og. nú í haust bætt mikið at-
vinnulíf og afkomu almennings á Seyð-
isfirði.
Mjóifjörður. Fyrir aldamót voru marg-
ar síldveiðistöðvar við Mjóafjörð og þótti
þar síldarsælt. Sást síld þar i uppivöðu
í haust af og til áður en veiði byrjaði
og síðan farið var að veiða, hefur mikið
síldarmagn verið þar í firðinum, og var
nokkuð af sildinni, sem söltuð var á
Norðfirði og Seyðisfirði, sótt þangað. —
Síldarsöltunarstöð er nú engin á Mjóa-
firði og þorskútgerð lítit, en þó hafa
Mjófirðingar veitt nálægt 1000 skippund-
um af fiski þetta ár og er mikið af þeim
afla veitt á flotlínur inni í firðinum.
Mun hvergi á Austurlandi hafa veiðst
eins mikið með jafn litlum kostnaði.
Norðfjörður. Á Norðfirði er mestur
sjávarútvegur á Austurlandi. Eru þar
margir góðír bátar, sem aflað hafa vel í
ár, og er afkoma manna nú betri en
verið hefur síðustu árin. Nokkuð var
saltað þar af síld í haust, eða nálægt
3000 tunnum, enda var í haust og er
enn þá mikil síld í Norðfirði og Hellisfirði.
Á síldarárunum fyrir aldamót voru engar
síldarsöltunarstöðvar á Norðfirði, en ef
dæma má eftir reynslu tveggja undan-
farinna hausta, má veiða síld á Norð-
firði engu siður en á hinum öðrum Aust-
fjörðum. Afla-hæsti bátur á Norðfirði
»Hilmir«, hefur fiskað nálægt 1000 skip-
pundum þetta ár. Formaður Sigurður
Lúðviksson.
Eskifjörður. í engu hinna stærri kaup-
túna austanlands, hefur sjávarútvegi
hrakað eins hörmulega eins og á Eski-
firði. Nú eru þar 8 dekkaðir vélbátar,
en voru 20 fyrir 12 árum. Á árunum á
milli 1920 og 1930 voru einnig gerðir
út þaðan stórir vélbátar, línuveiðari og
togari. Þetta er nú allt farið, að eins
eftir 8 vélbátar, flestir aflóga fé, vegna
elli. Síldveiðin hefur veitt fólki á Eski-
firði nokkra atvinnu undanfarin ár, en
i sumar var saltað mjög lítið af síld þar*
Afkoma manna á Eskifirði, er yfirleitt
slæm, framleiðslutæki fá og ófullkomin,