Ægir - 01.01.1933, Side 49
ÆGIR
43
nota þær sem hangandi svipu yfir höfð-
um manna til að koma í veg fyrir, að
þeir þori nokkuð að aðhafast. Það er
tæpast vel fallið til að auka framtaks-
semi og dugnað manna, að sjá fram-
undan líkurnar eða vissuna fyrir því,
að allt sem þeir kunna að hafa afgangs
— hversu vel sem gengur — verði tekið
af þeim upp í gamlar skuldir, sem eru
svo miklar hjá mörgum, að engar líkur
eru til, að þeir geti nokkurntíma greitt
þær að fullu.
Á Norðfirði voru haldin námsskeið í
mótorfræði og siglingafræði, og senda
kennararnir skýrslu yfir þau.
Eskifiröi 12. janúar 1933.
Friðrik Steinsson.
SlYsavarnafélagið 5 ára.
Eins og allmörgum er kunnugt, var
Slysavarnafélag íslands 5 ára 29. janúar,
og var þess minnst í útvarpinu eins og
útvarpshlustendum er kunnugt. Það var
mikið gleðiefni öllum aðstandendum fé-
lagsins, að meðtaka þennan dag þá hina
stórrausnarlegu gjöf frá þeim heiðurs-
mönnum, er nú standa að leifum »Þil-
skipaábyrgðarfélagsins við Faxaflóa«, þeim
Einari kaupmanni Þorgilssyni í Hafnar-
firði, Ásgeiri Sigurðssyni ræðismanni, Geir
Sigurðssyni skipstjóra og Geir G. Zoéga
útgerðarmanni, að upphæð 18 þúsund
krónur. Gjöfin er rausnarleg, en það er
engu minna vert um þann hug, sem ligg-
ur bak við, og ríkan skilning á þörf og
gagnsemi þeirra verkefna, sem Slysa-
varnafélagið berst fyrir að koma í fram-
kvæmd, sem í hverju tilfelli lýsa sér í
þvi, að reyna að »byrgja brunninn áðnr
en barnið er dottið ofan í«. Mér finst
alt benda til þess í dag, að þessi virðu-
lega gjöf og kveldið í gærkveldi ætli að
skapa félaginu marga gleðidaga, og
möguleika til aukins starfs. Eg var ekki
fyr kominn á skrifstofuna í morgum en
hringt var til mín, og tilkynt innganga í
félagið, og hafa margir bæst við i dag.
Þá hef ég enn i dag tekið við rausnar-
gjöf til björgunarskútukaupa, 150 kr., frá
húsgagnasmíðameistara Hjálmari Por-
sieinssyni, Klapparstig 28, og þeim smið-
um sem hjá honum vinna. Þetta allt
finn ég mér skylt að þakka fyrir félags-
ins hönd. Eg sé að þetta er fagur for-
boði þess, að fé streymir til fólagsins á
nálægum tímum, mikið og lítið eftir efn-
um hvers gefanda. Eg sé að þjóðin öll
ætlar að taka að sér þetta 5 ára barn,
sem sitt barn. Ég sé að hún ætlar að
gera það fullveðja löngu fyrir lögaldur.
Ég efast ekki um að þjóðin skilji þörf-
ina. Hún hefir sýnt það svo oft. Að eins
að hún muni þörjina. Ef svo er, þá er
framtíð félagsins borgið. Og það er ein-
mitt þetta, sem dagurinn í dag ber svo
ljóslega með sér. Að fólk skilur og vill.
Og það gefur mér ástæðu til að halda,
að þjóðin öll ætli að muna, og vera
sjálfri sér trú í göfugu starfi. Látið þér
mig ekki hafa frið. Ég skal innrita. Ég
skal taka á móti gjöfum.
Þakka kærlega meðteknar gjafir og
þakka einnig þeim, sem ætla að gefa.
30. jan, 1933.
Jón E. Bergsveinsson.
Skiptapi.
Hinn 20. janúar s. 1. hvarf vélbáturinn
»Kveldúlfur« M. B. 27 frá Akranesi, í
róðri og hefur ekkert spurst til hans síðan,
þrátt fyrir mikla leit. Formaður og eigandi
bátsins var Skafti Jónsson á Akranesi.