Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1944, Qupperneq 7

Ægir - 01.02.1944, Qupperneq 7
Æ G I R 37 meiri, en síldaraflinn tæplega 37 þús. smá). meiri en árið áður. Engar teljandi breytingar urðu á verkun aflans, eins og sjá má á yfirlitinu hér á eftir, þar sem sýnd er verkun aflans á þorskveiðunum svo og síldaraflinn í heild. Des. Jati.-des. Jan.-des. 1943 1943 1942 1. Fiskur, isaður: smál. smál. smál. a) í útflutningsskip .. 2 018 89 129 94 817 b) Afli fiskiskipa útíl. af þeim 7 623 74 768 57 080 Samtals 9 641 163 897 151 897 2. Fiskur til frystingar.. 1 327 31 833 24 358 3. Fiskur í herzlu » 1 183 879 4. Fiskur til niðursuðu . 63 166 207 5. Fiskur i salt: a) Venjul. saltfiskur . 34 3 772 10 472 b) Tunnusaltaður .... » 312 2 947 6. Sild » 181 958 145 135 Samtals 11 065 383 121 335 895 Enn voru rúmlega % hlutar fisksins flutt- ur lít ísvarinn, og er það aðeins meira en á fyrra ári. Hundraðshluti frjrsta fisksins befur hækkað úr 12,6 árið 1942 í 15,8 árið 1943. Er sú verkunaraðferð í örum vexti. Aðrar verkunaraðferðir áttu aðeins mjög lítinn hluta hver. Þannig' var t. d. salt- fiskurinn aðeins 2,4%, en var þó tæplega 7%árið áður og nær því 33% árið 1941. Hluti togaranna í ísvarða fiskinum var uieiri nú en árið áður, enda lengri úthalds- timi. Mun hann um 46% samanborið við 37 % árið áður. Sildaraflinn var, svo sem áður getur, nokkru meiri en árið áður. Meginhluti hans var unnin í verksmiðjum, eins og' áður, og verður komið nánar að þvi síðar. Fiskideild Atvinnudeildar Háskólans hélt áfram rannsóknum með sama hætti og áð- ur. Ránnsóknirnar voru söjim annmörkum bundnar og undanfarin ár: Ekkert rann- sóknarskip og illt aðstöðu til fiskmælinga í verstöðvum. Aðaláherzlan var lögð á þorsk-, ýsu- og síldarrannsóknir, eins og árið áður, og hefur meira að segja tekizt að færa allverulega út kvíarnar. Af þorski tókst að fá mælt rösk 46 þús. (14 þús. 1942, 27. þús. 1941) og aldur var ákvarðaður á tæplega 6 þús. (2 þús. 1942, 2700 1941), en úr þeim gögnum hefur þó ckki verið fullunnið enn þá. Þessar rann- sóknir leiddu m. a. það í ljós, að göngur þorsksins á vertíðinni hafa nú að mestu leyti færst í sama horf og var um og fyrir 1936, þ. e. þorskstofninn gekk alla leið á hin gömlu vertíðarmið til þess að hrygna á vetrarvertíðinni 1943. í fyrri yfirlitsgrein- um í Ægi (Sjávarútvegurinn 1940, 1941 og 1942) hefur þess verið minnst, hvað á- bótavant var við göngur þorsksins og hve lítið samræmi var oft á milli hins mikla stofns í sjónum og oft rýrrar eftirtekju af þorskveiðunum. Um hávertíðina 1943 (í apríl) var stofn- inn mjög líkur við alla Suður-ströndina, a. m. k. frá Eldeyjarbanka austur fyrir Vestmannaeyjar. Aðaleinkenni stofnsins var hinn mikli styrkleiki 9 vetra þorsksins (árg. 1934), en hann nam allt frá þriðjungi og upp í helming aflans (sjá Ægir 1943, bls. 206—212). I janúar nam þessi árgangur einn 34,6% á Akranesmiðum, 35,7% í Mið- nessjó, en aðeins 12,4% við Vestmannaeyj- ar, enda var fiskurinn þá í göngu úr kalda sjónum og eigi kominn suður fyrir land i stórum stíl. 1 apríl nam þessi sami árgang- ur 35,8% á Eldeyjargrunni, 41,3% á Sel- vogsbanka og 33,3% við Vestmannaeyjar. Hlutdeild 9 vetra fisksins i netjaveiðinni við Vestmannaeyjar var stórkostleg, nam bann þar 53,0% i apríl og 44,3% í maí. Af ýmsum ástæðum er erfitt að segja fyrir um stærð þorsksstofnsins á komandi árum, þar sem mikill hluti hans hefur alizt upp utan íslandsmiða, t. d. við Grænland, og höfum við enga spurn haft af því siðan styrjöldin brauzt út, og enn fremur hefur verið erfitt að afla upplýsinga um ungfisk- inn hér við land. Hitt er aftur á móti hægt að fullyrða, að eins og er, stendur stofn- inn í blóma og standa allar vonir til þess, að hann geti borið ágæta veiði á komandi vertíð, úr því að göngurnar hafa breytzt til batnaðar á ný.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.