Ægir - 01.02.1944, Blaðsíða 60
90
Æ G I R
Útfluttar sjávarafurðir í jan. 1944.
Jan.
ísfiskur: kg
Samtals .......................... 8 040 056
Stóra-Bretland .................. 8 040 056
Freðfiskur:
Samtals .......................... 726 706
Stóra-Bretland .................. 726 706
Sild (söltuð). tn
Samtals .......................... 6134
Bandaríkin .......................... 6134
Fiskaflinn 31. janúar 1944.
(Miðað við slægðan fisk með haus.)
Jan. Jan.
1944, 1943,
1. Fiskur, ísaður: smái. smái.
a. í útflutningsskip .......... 2 508 5 914
b. Aí'li fiskisk. útfi. af þeim .. 4 088 »
Samtals 6 596 5 914
2. Fiskur til frystingar ......... 2 670 667
3. Fiskur til niðursuðu .......... 51 16
Alls 9 317 6 597
furið, því það er aðaltilgangur þessarar
greinar, að festa samþykkt verstfirzku þii-
skipaeigendanna á pappírinn, svo hún
megi þar varðveitast, en jafnframt hregða
upp nokkurri mynd uin vestfirzka þil-
skipaútgerð á hlómaárum hennar, til
ánægju fróðleiksfúsum lesanda, en angurs
hinum, sem engu láta sig skipta það, sem
horfið er.
Má ekki sízt minnast þilskipaútgerðar-
innar sökum þess, að hún var flestum fiski-
rnönnum sjómannaskóli þeirra tíma. Þar
lærðu þeir að þreyta fangbrögð við Ægi,
og margir urðu snillingar í þeirri grein.
Þilskipaútgerð íslendinga varð líka uppi-
og undirstaða djarfra drauma um stærri
og betri skip.
Fált mun enn í íslenzkri sjómannastétl
af hinum gömlu skútuvíkingum, en vel
þóttú þeir liðtækir, sem flultust yfir á tog-
arana eða skip í millilandasiglingum. Þeir
Iiöfðu haft harðan en góðan skóla á þil-
skipunum, sem þroskaði í senn harðfengi
og hollan metnað, en jafnframt félagslund
og fórnfýsi.
P. t. Rvík 13. febr. 1944.
Arngr. Fr. Bjarnason.
Vitabyggingar 1944.
Vitanefnd kom saman á fund 1. marz
s. l.'til að taka ákvarðanir um vitabvgg-
ingar á árinu 1944.
Voru tillögur gerðar um byggingu eftir-
laldra vita: .
1. Nýr viti á Æðev í ísafjat'ðardjúpi.
2. Endurbygging á Garðskagavita.
3. Endurbygging á Bjarnareyjafvita.
Enn fremur að Ijúka við vitana á Svart-
nesi og Akranesi, sem byrjað var á s. 4. ár.
Gert er ráð fyrir, að Ijósker fáist í þrjá
vita á þessu ári. Þormóðsskers-, Kolbeins-
langa- og Grenjanessvita.
Hefur ráðherra nú samþykkt þessar til-
lögur vitanefndarinnar.
Fjárveiting .til vitabygginga árið 1944 er
kr. 350 þús.
Auk ofangreindra tillagna taldi vita-
nefndin mikla nauðsyn á byggingu eftir,-
greindra vita, þegar á þessu ári: . .
1. Bálkastaðanes.
2. Svartastaðatangi. .
3. Kögur við Borgarfjörð.
4. Sandgerði (endurbygging).
5. Ketilflös.
Þar sem fjárveiting til þessara vita var
ekki fyrir hendi, var fjárveitinganefnd Al-
þingis skrifað og farið fram á viðbótar-
f járveitingu til vitabygginga fyrir árið 1944
að upphæð kr. 350 þús.
Hvort sú fjárveiting fæst er enn ekki
vitað.