Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1944, Blaðsíða 8

Ægir - 01.02.1944, Blaðsíða 8
38 Æ G I R Til ýsurannsókna hefur verið safnað við- tækari gögnum en nokkurt annað ár. Sam- tals voru mæidar 27 337 ýsur, en kvörnum safnað til aldursákvarðana á 2 770. Það liefur ekki ennþá enzt tími til þess að vinna úr þessuin efniviði, nema að mjög litlu leyti, en þó er óhætt að fullyrða, að árangurinn frá 1936 er ennþá mikils virði. Síðastliðið ár hólaði talsvert á 3 vetra ýsu (árg. 1939), en sá árgangur hefur ekki reynzt jafnsterkur í ár og búast hefði mátt við. Einnig verður að taka það til greina, að ýsustofninn hefur vaxið mjög síðustu tvö árin og því er ekki eins mikið komið undir styrkleika árganganna eins og með- an hann var veikari. Á Siglufirði voru mældar 4 725 síldar og reyndist meðallengdin nokkuð hærri en venjulega, en það stafar af hærri aldri síld- arinnar þetta ár, en áður. Meðallengdin var 35.12 cm, en er vanaiega 34.94 cm. Mryggjarliðir voru taldir í 3500 síldurn og var meðaltala þeirra 57,075, einnig nokkuð yfir meðallag. Þá var ákvarðaður aldur á 3 184 sildum og varð úkoma þeirra rann- sókna þessi: Meðalaldurinn var 12,2 ár, eða 0.7 árum yfir meðallag. Hæst bar 11 vetra sildina, því að hún nam 24.8%. 13 vetra síldin gekk næst henni með 20.8%, en þetta voru sömu árgangarnir (1930, 1932) og slerkastir höfðu verið sumurin áður. Loks reyndist 9 vetra síklin vel, en hún nam 9.9%. Þessir þrír árgangar, frá 1930, 1932 og 1934 hafa þá skapað 55.5% síldveiðinn- ar, enda þótt 20 aldursflokkar fyndust í stofninum. Þá voru mældar 944 síldar, sem veiðzt höfðu í Faxaflóa í ágúst og október. Eins og venja er til, var meðallengdin miklu minni en á Norðurlandssíldinni, hún reynd- ist 33.50 cm, enda er hér að ræða um allt annan stofn. Aldursrannsóknir á 896 síld- um leiddu í ljós, að langmest ber á 5 vetra síld, en annars var aldurinn 5—12 ár, með- alaldur 6.5 ár. Rannsakaðar voru 1370 síldarmagar úr Siglufjarðarsíldinni og' reyndist átumagnið þannig: Um miðjan júli var átumagnið 9.7 ccni, síðast í júlí 9.4, fyrst í ág. 7.6, um miðjan ág. 19.3 og síðast ág. 11.4 ccm. Meðalátan allan tímann reyndist 10.6 ccm og er það meira en nokkurt annað ár. Loks má geta þess, að fiskideildin hefur sent frá sér tvær ritgerðir eftir mag. Á. Friðriksson, er önnur um beitusmokkinn, cn hin um loðnuna. Birtust báðar í 25 ára minningarriti Vísindafélags íslendinga. Skrifstofa fiskifélagsins veitti móttöku 13 fiskmerkjum á árinu. Voru það allt merki úr þorskum. Höfðu þorskarnir allir verið merktir við Vestur-Grænland á árun- um 1937—1939. Veiddust 8 þeirra í Faxa- flóa og' við Suðurlandið, 3 við Austfirði og 2 við Vestfirði, allir á tímabilinu febrúar —júni. a. Sunnlendingafjórðungur. Þátttaka í útgerðinni í Sunnlendinga- ljórðungi var yfirleitt svipuð 1943 og árið áður og í sumuin mánuðum ársins jafnvel nokkru meiri (sbr. töflu III). Einkum átli það við seinni hluta ársins. Togararnir voru flestir gerðir út meiri hluta ársins, svo sem áður var getið. Veiddu þeir í ís og' sigldu með aflann sjálfir, að undanteknum nokkrum skipum, sem fóru n’okkrar ferðir og seldu afla sinn í fiskkaupaskip. Þau fáu línugufuskip, sem enn eru i fjórðungnum, voru ekki gerð út nema nokkurn hluta ársins. Voru þau í ísflutn- ingum fyrri hluta ársins og á síldveiðum um sumarið. Flest skipin í fjórðungnum eru mótor- hátar yfir 12 rúml. Voru þeir flestir gerðir út á vetrarvertíðinni og svo aftur á sild- veiðar um sumarið. Framan af vertíðinni voru þeir þó mun færri gerðir út en árið áður, þar eð margir þeirra fóru ekki á veiðar með lóð, heldur með botnvörpu, en þær veiðar hefjast að jafnaði ekki fyrr en liður á vertíðina. Þegar leið á haustíð og undir áramótin voru aðeins fáir þeirra gerðir út, enda fer þá að jafnaði fram und- irbúningur undir vetrarvertíðina. Útgerð mótorbáta undir 12 rúml. var með svipuð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.