Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1944, Síða 33

Ægir - 01.02.1944, Síða 33
Æ G I R ■...r- 63 Taíla XXVIII Beitufrysting (síld og kolkrabbi) árin 1940—1943. 1943 1942 1941 1940 Fjorðungar: H l<g l<g kg Sunnlendinga 3 008 650 1 785 500 2 558 000 2 032 500 Vestfirðinga 1 171 700 989 000 1 043 000 580 000 Norðlendinga 1 527 300 885 400 783 500 334 500 Austfirðinga )) 92 600 104 400 140 700 Samtals 5 707 650 3 752 500 4 488 900 3 087 700 sinni aðallega fram að lokinni vetrarvertíð og um haustið, en verkaður fiskur frá fyrra ári var ekki fluttur út fyrr en í maímánuði (sbr. töflu XXVI). Innflutningslönd saltfisksins voru aðeins 3 (sbr. töflu XXVII). Verkaði fiskurinn var seldur til Spánar og var það fiskur fram- leiddur árið 1942. Var enginn fiskur full- verkaður á árinu, nema til innanlands- neyzlu. Óverkaði fiskurinn var seldur til Bretlands að langmestu leyti og aðeins smávægilegt magn til Bandaríkjanna. 9. Beitufrysting. Beitufrysting á árinu 1943 var með allra mesta móti (sbr. töflu XXVIII). Árið áður bafði beitufrysting verið mun minni og lá þá við borð að beituskortur yrði á vertíð- inni 1943, en ekki kom þó til þess. Eins og áður, var frystingin mest í Sunn- lcndingafjórðungi og nam það um 53% af heildarmagninu. Var sú síld öll veidd í Eaxaflóa og við Suðvesturland um sumarið og haustið. Óvenjumikið var að þessu sinni fryst um sumarið, þvi veiði í reknet var þá niikil. í Vestfirðingafjórðungi var frystingin oinnig nokkru meiri en á fyrra ári. Var þar fryst síld, veidd í herpinót við Norðurland uin sumarið, og flutt til Vestfjarða. Nokkuð veiddist og' af kolkrabba í fjórð- ungnum um haustið, og var liann frystur í beitu. Frysting á Norðurlandi var óvenju mikil og um 73% meira en árið áður. Var sú sild öll fryst um síldveiðitimann. Síldarfrysting var engin í Austfirðinga- fjórðungi á árinu, og keyptu menn þar aðallega beitu frá Norðurlandi. Vegna hinnar óvenjulega miklu beitu- frystingar á árinu mun óhætt að gera ráð fyrir, að næg beita verði til í landinu þar lil sildveiði hefst á ný árið 1944. 10. Skipastóllinn. Skipatjónið var enn allmikið á árinu 1943. Nam það alls 10 skipum, sem var samanlagt 1252 rúml. br. Var meðal þess- ara skipa stærsti og nýjasti togarinn í flot- anum, og gerist nú skammt stórra högga á milli meðal þeirra skipa. Stærsta skipið, sem fórst á árinu var ms. Arctic 488 rúml. að stærð. í árslok 1943 var rúmlestatala skipa- stólsins talin alls 40 815, og er það aðeins meira en árið áður (sbr. töflu XXIX). Breytingar milli skipaflokkanna innbyrðis hafa engar orðið teljandi. Af 653 skipum voru 634 fiskiskip. Hér er þó það að athuga, að einungis þau fiskisldp eru talin, sem eru þiljuð, en auk þeirra er mikill fjöldi op- inna vélbáta, en um tölu þeirra eru ekki til neinar öruggar heimildir. Samanlögð rúm- lestatala fiskiskipanna var 27 355 og er það um % alls skipastólsins. Öll fiski- skipin, að undanskildum togurunum og nokkrum línuveiðagufuskipum, eru rnótor- skip og tína gufuskipin nú smátt og smátt tölunni, en ný koma ekki í stað þeirra, sem hverfa úr þeim hópi. Skipasmíðar voru með allra mesta móti innanlands. Fullsmíðuð urðu alls 15 skip

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.