Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1944, Side 37

Ægir - 01.02.1944, Side 37
Æ G I R 67 maður hans Einvarður Hallvarðsson, full- trúi. Óskar Halldórsson, útgerðarmaður. Varamaður hans Þorvarður Björnsson, hafnsögumaður. Pétur Ottesen, alþingismaður. Varamað- ur hans Jón Sveinsson, útgerðarmaður. I lok fiskiþingsins voru kjörnir tveir heiðursfélagar fiskifélagsins, þeir Matthí- as Þórðarson fyrrv. ritstjóri og Thor Jen- sen fyrrv. framkvæmdastjóri. Hér fara á eftir tillögur þær og ályktanir, er gerðar voru i helztu málunum, sem lágu fyrir þinginu. Breytingar á lögum fiskifélagsins. Ekki þykir ástæða til að birta hér í heild lög félagsins og er því látið nægja að geta þeirra greina, sem nvjar eru og þeirra, er niestar breytingar voru gerðar á. — For- maður félagsins heitir nú fiskimálastjóri, en hét áður forseti Fiskifélags íslands. Félagið mynda: Fjórðungssambönd, einstakar deildir og a'vifélagar sem styrktarfélagar. Aðaldeild félagsins er þar með lögð niður. Samkvæmt 3. gr. laganna er tilgangur og starfssvið félagsins sem hér segir: „Að hafa forgöngu um sluðning og efl- ingu alls þess, er verða iná til framfara i fiskveiðum og fiskiðnaði landsmanna, svo þær atvinnugreinar megi verða sem arð- samastar þeim, sem að þeim starfa, og þjóðinni i heild. Tilgangi félagsins skal ná með þvi: 1- að það hafi á hendi framkvæmd þeirra mála, sem Alþingi og ríkisstjórn felur þvi, 2. að ver-a ráðunautur Alþingis og ríkis- stjórnarinnar i öllum sjávarútvegsmál- um og öðrum hagsmunamálum útgerð- armanna og fiskimanna, 3. að vinna að eflingu útvegs og fiskiðn- aðar með rannsóknum, tilraunum, fjár- styrkjum og leiðbeinandi eftirliti. 4. að stuðla að sem nánastri samvinnu útvegsmanna i öllum greinum, svo sem við sameiginleg innkaup á nauðsynjum útgerðarinnar, góðri hagnýtingu aflans og sem hagkvæmastri afurðasölu, 5. að stuðla að hafna- og lendingabótum, fjölgun vita og sjómerkja, bjargráðum á sjó og með ströndum fram, aukinni vöruvöndun, greiðari samböndum milli veiðistöðva landsins og hag- kvæmum markaðssamböndum erlendis. 6. að stuðla að visindalegum rannsóknum í fiskifræði og fiskiðnaði, sem ástæða þykir til, að tilraunum með fiskiklak, stofnun fiskiáhalda- og fiskritasafns í Reykjavík og aukinni þekkingu á Hfs- háttum íslenzkra nyljafiska." Stjórn fiskifélagsins skipa nú 5 menn í slað þriggja áður, og er fiskimálastjóri formaður stjórnarinnar. Fiskiþing skipa 22 fulltrúar í stað 12 áð- ur. Nú skulu fulltrúar á fiskiþing kosnir þannig: Reykjavíkurdeild ............. 4 fulltrúa Fjórðungsþing Sunnlendinga . . 4 ---- Vestfirðinga ... 4 — ---- Norðlendinga . . 4 — ---- Austfirðinga . . 4 — Vestmannaeyjadeild .......... 2 — Aður voru 4 fulltrúar kosnir af aðaldeild og 2 af fjórðungsþingi hvers fjórðungs. Samkvæmt 5. grein hafa atkvæðisrétt og kjörgengi til fiskiþings og fjórðungsþinga: a) allir, sem eiga fiskiskip, stærri eða smærri og komi 5 atkv. fyrir hvert skip, enda hafi skipið verið gert út til fisk- veiða a. m. kosti eina vertíð næsta ár áður en kosning fer fram. Missi skips- eigandi skip sitt, heldur hann atkvæðis- rétti sínum, ef hann á fé i nýbvggingar- sjóði eða skip i smíðum, b) allir fiskimenn, sem stundað hafa fiskveiðar a. m. k. eina vertíð næsta ár áður en kosning fer fram og hafa sjó- mennsku að aðalstarfi, og hefur hver fiskimaður 1 atkvæði. Enn fremur sér- menntaðir menn á sviði sjávarútvegsins og ráðunautar félagsins,

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.