Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1954, Page 18

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1954, Page 18
ekki að geta farið fram hjá viðkomandi aðila, hvað við liggur, ef hann lætur undir höfuð leggjast að hlýðnast yfirvaldsboði og fullnægja þeirri skyldu, er það leggur honum á herðar. Honum er þá í sjálfsvald sett að komast hjá frekari óþægindum og vítum. Fullnægi hann skyldunni, á hann ekkert févíti á hættu. Nú á tímum, þegar löggjöf er svo umfangsmikil og margbreytileg, ekki sízt á sviði stjórnarfarsréttar, að ekki er unnt að gera ráð fyrir því, að almenningur kunni nokk- ur veruleg skil á lagareglum, er mikilsvert, að sérstök at- hygli skylduþegns sé vakin á lagaskyldunni með fé- vítishótuninni. Yfirvalds ákvörðun um févíti getur því haft meiri áhrif á athafnir manns en refsiregla, sem hann þekkir ekki. Ef þeirri skyldu, sem um er að tefla, er fullnægt innan tilskilins frests, kemur ekki til greiðslu févítis. Það hef- ur þá ekki fallið á skylduþegn. Ljóst er enn fremur, að fullnusta, hvenær sem er, stöðvar frekara áfall dagsekta. Spurning er hins vegar, hvernig fara skuli með áfallnar en óinnheimtar dagsektir eða annað févíti, þegar skyldu er fullnægt. Hér hefur vanræksla átt sér stað, og hafa því dagsektir eða aðrar þvingunarsektir fallið á, um lengri eða skemmri tíma. Á að láta innheimta eða afplána áfall- ið févíti, þrátt fyrir það, að fullnusta hefur farið fram, eða á áfallið en óinnheimt févíti að falla niður, þegar skyldu er fullnægt, þótt slíkt eigi sér ekki stað fyrr en löngu eftir tilskilinn tíma? Ef litið væri á févíti sem refsingu, myndi fyrri leiðin vera rökréttari, þ. e. fullnusta skyldunnar ætti ekki að skipta máli um áfallið févíti. Það ætti þá engu að síður að innheimta eða afplána. Yfirvaldsboðinu hef- ur verið óhlýðnazt um lengri eða skemmri tíma — brot hefur verið framið — til refsingar hefur verið unnið. Ef gefa ætti upp sakir við fullnustu skyldunnar, án þess að aðstæður hverju sinni væru athugaðar, mætti orða, að óhlýðni væri gefið undir fótinn. Sé hins vegar litið á fé- vítið sem þvingunarráð, koma nokkuð önnur sjónarmið til greina. Þá verður fyrst og fremst litið á það, hvor 80

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.