Tímarit lögfræðinga - 01.06.1969, Page 68
Nýr prófessor.
Sá, er þetta ritar, lét af störfum fyrir aldurssakir hinn
1. september s.l. Embættið hefur verið veitt Gauki Jör-
undssyni lektor. Hér er þó um bið sama að ræða og oft
endranær í lagadeild, að alls óvíst er, og reyndar ólíklegt,
að hann taki við störfum undirritaðs, enda standa nú fyr-
ir dyrum ýmsar breytingar á náminu, eins og fj'rr var
getið. Gaukur lauk lagaprófi vorið 1959 með hárri fyrstu
einkunn. Hann hefur stundað framhaldsnám í Osló, Kaup-
mannahöfn og Berlín og unnið að rannsóknum á sviði
Jögfræði, með stvrk úr vísindasjóði. Hann var um skeið
fulltrúi yfirborgardómara í Reykjavík, en siðar lektor við
lagadeildina. Hann hefur nú fengið tekna gilda doktors-
ritgerð, sem Jiann mun verja innan skamms.
Má alls góðs af honum vænta.
Nýtt prófessorsembætti.
Með lögum nr. 51 19/5 1969 var stofnað prófessorsem-
bætti i ættfræði við lagadeild. Það er bundið við nafn
Einars Bjarnasonar, áður endurskoðanda ríkisins. Pró-
fessor Einar lauk prófi í lögum við Háskóla Islands árið
1933. Lengst af hefur liann starfað að endurskoðun, en
hugur lians hefur þó einkum hneigzt að ættfræði og per-
sónusögu. Hel'ur hann margt ritað á því sviði, t. d. Lög-
réttumannatal og séð um útgáfu Alþingisbóka.
Er þess að vænta, að vísindastarf á þessu sviði leiði til
góðs árangurs, enda aðstaða hér betri en víða annars stað-
ar, meðal annars vegna mannfæðar Islendinga og mikils
áhuga þeirra á þessu sviði bæði fyrr og síðar.
152
Tímarit lögfræðinga