Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Qupperneq 11
ULFJÓNSSON
Ulf Jónsson lögfræðingur andaðist í s.l. júní-
mánuði, en hann hafði á síðari árum átt við
nokkra vanheilsu að etja.
Ulf Jón Skúli Jónsson, en svo hét hann
fullu nafni, var fæddur í Kaupmannahöfn 12.
júlí 1906. Var faðir hans Magnús Jónsson lög-
fræðingur og hagfræðingur frá Úlfljótsvatni.
Átti Magnús heima í Kaupmannahöfn frá því að
hann lauk lögfræðinámi þar árið 1904 til ársins
1920, er hann var skipaður prófessor í lögum
við Háskóla Islands. Því starfi gegndi hann til
1933, en fjármálaráðherra var Magnús 1922—
1923. Móðir Ulfs, Harriet, var dönsk að ætt-
erni, dóttir Gottlieb Bonnesens stórkaup-
manns, menntuð kona og listræn.
Til Reykjavíkur fluttist Ulf árið 1920 með for-
eldrum sinum og bróður sínum Vagni, sem nú er hæstaréttarlögmaður (
Reykjavík. Ulf lauk stúdentsprófi árið 1925 og hóf þá nám í lögfræði. Vorum
við 10 talsins af þeim stúdentaárgangi, sem settumst í lögfræðideild Háskóla
íslands haustið 1925. Er margs góðs að minnast frá samskiptum okkar lög-
fræðinemanna frá stúdentsárunum. Reyndist Ulf þægilegur félagi, léttur í
lund, orðheppinn í besta lagi og glöggur á hina broslegu þætti í fari
samferðamannanna. Undanskildi hann ekki heldur sjálfan sig i þeim efnum.
Eftir embættispróf, sem við Ulf lukum sinn daginn hvor í júnímánuði 1930,
skildu leiðir að mestu. Hvarf Ulf eftir skamma dvöl sem bankastarfsmaður í
Reykjavík austur í ættarsveit sína Grafninginn og gerðist bústjóri á Úlfljóts-
vatni, en þar rak Magnús prófessor, faðir hans, bú frá 1928 til dauðadags 1934.
Árið 1939 hóf Ulf störf hjá Sogsvirkjuninni og starfaði hann í þjónustu
orkuveranna við Sog allt til dauðadags 30. júní s.l. Hann reisti sér notalegt
býli, að Brúarlandi skammt frá Ljósafossi, þar sem eiginkona hans Vilborg
Kolbeinsdóttir fyrrum hreppstjóra Guðmundssonar á Úlfljótsvatni, bjó honum
og börnum þeirra, sex dætrum og syni, gott og gestrisið heimili. Ulf var dag-
farsprúður maður og hæglátur og ekki fyrir það gefinn að tylla sér á tá f
félagsmálum. Hann naut vinsælda hjá samstarfs- og samferðamönnum sín-
um. Og þá sjaldan við hittumst á síðari árum brá hann enn fyrir sig sömu
góðlátlegu glettninni, sem einkenndi hugarfar hans og skapferli á skólaárunum.
Hákon Guðmundsson
9