Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1994, Síða 20

Ægir - 01.09.1994, Síða 20
Valentín Druzhunin, skipstjóri á Osveia, rússneskum frystitogara „Viö höfum verib á þorskveiðum í Barentshafi í þrjá mánuði samfleytt. Við rábum því ekki hvar vib lönd- um. Þab er ákveðið austur í Murm- ansk hjá útgerðinni. Eg ræb engu, ég er bara skipstjóri en ekki pólitíkus. Sem skipstjóri hef ég aldrei heyrt get- ib um eða fengib nein fyrirmæli um að ekki eigi ab landa afla á íslandi. Mér er ekki kunnugt um að útgerðin hafi fengib nein slík fyrirmæli og þeir hafa aldrei rætt neitt slíkt við mig." Þetta segir Valentín Druzhun- in skipstjóri m.a. í viðtali við Ægi. Rússneski togarinn Osveia er 9 ára gamall rússneskur frystitogari, 1.900 brúttótonn, smíðaður í Austur-Þýska- landi. Hann er gerður út til þorskveiða í Barentshafi og landar meðal annars á íslandi. í byrjun ágúst var landaö úr togaranum í Reykjavík 240 tonnum af þorski og lúðu og þá tók Ægir stutt viðtal vib skipstjórann, Valentín Druzhunin, sem var að koma í annaö skipti til íslands. „Við höfum haft samskipti vib ís- lendinga í tvö ár og ég hef ekki heyrt annað en að þau samskipti hafi líkað vel og gengið vel. Vélbúnaðurinn sem keyptur var og settur um borð í Stál- smiðjunni í fyrra hefur reynst vel og allt staðið eins og um var samið." Valentín segir að ekki sé í föstum skorðum hvenær skipið landar heima og hvenær erlendis. Það sé háð mark- aðsaðstæðum hverju sinni og því verði sem fæst. Þó er útgerðin ekki algjörlega frjáls að því hvert skipið er sent því sérstakt leyfi þarf eystra til þess að landa afla erlendis. Launin eru lág Launin eru eins og venja er, reiknuð út frá afla. Valentín segir í fyrstu at- rennu að þau séu leyndarmál. Þegar málið er rætt frekar segir hann að þau séu mjög mikið lægri en tíðkast á Vest- urlöndum. Hann telur að um 2-3% af aflaverðmæti fari til þess ab greiða áhöfninni laun. Sé þetta borið saman við íslenskar hlutaskiptareglur má segja ab gróflega greiði íslensk útgerb 20% af brúttóverðmæti óskipts afla til áhafnar en hlutaskipti eru ekki reiknuð af óskiptu. Þetta þýðir að af hverjum 1.000 krónum af brúttóverðmæti afla fær íslenskur háseti ca. 228 krónur meðan rússneskur kollegi hans fær 20-30 krónur. Að minnsta kosti þriggja ára sér- menntun þarf ab loknu ígildi stúdents- prófs til þess að öðlast skipstjórnarrétt- indi. Það er síðan reynsla og frammi- staba sem ræður því hve fljótt menn verða skipstjórar. Valentín segir ab þab taki að jafnaöi 8-10 ár að vinna sig upp í skipstjórastólinn. Treystir fiskifræðingum Austur í Murmansk er ríkisstofnun sem úthlutar hverri útgerð kvóta og það fyrirkomulag hefur verið við lýði um áratugi. Valentín segist halda ab það megi selja hann milli útgerða en er ekki viss. Hann veit ekki hve mikinn 20 ÆGIR SEPTEMBER 1994

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.