Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 4

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 4
tekist með öllu. Dómstólum er skylt að útkljá deilur sem til þeirra er skotið með réttum hætti og fara einungis eftir lögunum við þau embættisverk eins og í stjórnarskránni segir. Ef sett lög væru einu réttarheimildirnar sem fara mætti eftir væru þessi skylduverk óvinnandi. Yrði þá að grípa til geðþóttaákvarðana til að ná fram úrslitum máls. Við því setur stjórnarskráin blátt bann. Af þessum sökum verður óhjákvæmilega að styðjast við aðrar réttarheimildir en sett lög. Svo ekki sé of djúpt í árinni tekið þá má fullyrða að til viðbótar sett- um lögum séu eftirtaldar réttarheimildir viðurkenndar, þ.e. réttarvenja, for- dæmi, lögjöfnun, meginreglur laga og eðli máls. Löggjafinn á ekki beina aðild að tilurð þessara réttarheimilda, sú aðild er einungis óbein í sumum tilfellum en engin í öðrum. Skal hér eitt dæmi tilfært til skýringar. Allt til þess að skaða- bótalög voru sett árið 1993 voru mál um líkamstjón dæmd á grundvelli réttar- venja og fordæma og reyndist það fyrirkomulag býsna vel. Engum datt í hug að það bryti gegn valdheimildum löggjafans að haga málum svona. Skaðabótalög- in voru hins vegar ný réttarheimild í þessum málaflokki sem með rétthæð sinni lagði hinar fyrri af. Hér áttu dómstólar ekki um neina kosti að velja, enda þótt hálfgert uppnám ríkti í þessum málum í nokkur ár vegna sífelldra breytinga á skaðabótalögunum. Dómstólum bar að fara eftir lögunum eins og þau voru á hverjum tíma hvað þeir gerðu. Um þetta er hvorki né verður deilt og hin nýja umræða nær ekki til þessa eftir því sem best verður séð. I raun sýnist umi'æðan snúast fyrst og fremst um það hvort dómstólar hafi, í kjölfar þeirra breytinga sem gerðar voru á stjómar- skránni 1995, tekið í sínar hendur að ákveða hvert skuli vera inntak mannrétt- indaákvæða stjómai'ski'árinnar, einkum þó þeirra sem 65., 75. og 76. gr. hafa að geyma, og með þeim hætti farið inn á valdsvið þar sem löggjafinn einn ráði ríkj- um. Þetta má eflaust orða svo að deilan snúist um það hvort mannréttinda- ákvæðin séu stefnuyfirlýsingar stjórnarskrárgjafans án sjálfstæðs efnisinntaks en efnið beri löggjafanum að ákvarða í almennri löggjöf. Eða hvort mann- réttindaákvæðin hafi efnisinntak sem löggjafanum beri að taka tillit til. Er nú rétt að skoða lítillega dóm Hæstaréttar í öryrkjamálinu út frá þessu sjónarmiði. I niðurstöðu meirihutans segir m.a. eftirfarandi: Svo sem áður greinir verður að telja að í 1. mgr. 76. gr. stjómarskrárinnar felist ákveðin lágmarksréttindi, sem miðuð séu við einstakling. Þrátt fyrir svigrúm al- menna löggjafans til mats á því, hvernig þessi lágmarksréttindi skuli ákvörðuð, geta dómstólar ekki vikið sér undan því að taka afstöðu til þess, hvort það mat samrýmist gmndvallarreglum stjórnarskrárinnar. Þegar litið er til skipulags réttinda örorkulíf- eyrisþega samkvæmt almannatryggingalögum og þeirra afleiðinga, sem í raun geta af því leitt fyrir einstaklinga, verður þetta skipulag ekki talið tryggja þeim þau lág- marksréttindi, sem í framangreindu stjórnarskrárákvæði felast, á þann hátt að þeir fái notið þeirra mannréttinda, sem 65. gr. stjómarskrárinnar mælir þeim, svo sem það ákvæði verður skilið að íslenskum rétti, sbr. 26. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg 152
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.