Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 10

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 10
hagssvæðið (EES). Jafnframt er tekið fram að þessi umfjöllun verður ekki sér- staklega tengd varúðarreglum né áhættumati. Hvorki úrskurðir Skipulagsstofnunar6 né umhverfisráðuneytisins eru gefnir út en í eftirfarandi umfjöllun verður oft vitnað til þeirra. Verður stuðst við texta þann sem er á netinu, sjá www.skipulag.is/pages/mau/mauframe.htm, hvað varðar úrskurði Skipulagsstofnunar og er þeim gefið hlaupandi númer í sam- ræmi við þá röð sem þeir voru kveðnir upp, t.d. fyrsti úrskurður Skipulagsstofn- unar árið 1994 verður US 1/94, o.s.frv. Hvað varðar úrskurði ráðuneytisins þá hefur verið stuðst við undirrituð ljósrit af þeim. Tilvísun til þessara úrskurða verður með þeim hætti að vísað verður til dagsetningar, t.d. úrskurður kveðinn upp 6. janúar 1998 verður ÚR 6/1/98. Ofangreindir úrskurðir eru mikilvægar réttarheimildir og gefa tilefni til margvíslegra rannsókna í umhverfisrétti, einkum vegna þess að fáir dómar hafa gengið hér á landi sem beinlínis varða umhverfisrétt. Þetta á sérstaklega við vegna þeirrar hugmyndafræði sem mótar umhverfisréttinn í dag og þeirra áhrifa sem hún hefur og ætti að hafa á efni laga sem varða umhverfismál, stöðu um- hverfisréttar gagnvart öðrum réttarsviðum lögfræðinnar og hvemig lögum sem tilheyra umhverfisrétti er beitt í tilteknum réttarkerfum, t.d. því íslenska, m.t.t. stjórnarskrárákvæða sem vemda sérstaklega ákveðin réttindi, svo sem atvinnu- frelsi og eignarrétt, og ýmissa meginreglna, t.d. lögmætisreglu, meðalhófsreglu og jafnræðisreglu. Ekki verður í greininni fjallað á svo víðtækan hátt um mat á umhverfisáhrifum né um sjálfbæra þróun og tengsl þeirrar hugmyndafræði við lög og lagakerfi. 1.2 Löggjöf á Norðurlöndum Þegar undirbúningur að ritun greinarinnar hófst velti ég því fyrir mér hvort rétt væri að bera saman löggjöf á Norðurlöndum um mat á umhverfisáhrifum og framkvæmd hennar. Eftir nokkra umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að heildarsamanburður væri ekki nauðsynlegur hvað þessa grein varðar þótt slíkur samanburður hefði almennt séð mikið gildi, ekki síst í ljósi þess að lög nr. 106/2000 ber að endurskoða fyrir 1. janúar 2003, sbr. ákvæði III til bráðabirgða. Astæður niðurstöðu minnar eru þessar: (1) Löggjöf á Norðurlöndum sem varðar mat á umhverfisáhrifum er með margvíslegu móti og sömuleiðis matsferillinn sem tekur mið af uppbyggingu stjórnsýslu umhverfismála í hverju landi fyrir sig. Hvað efni þessarar löggjafar varðar er í stórum dráttum fylgt tilskipun 85/337/EBE um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið og tilskipun 97/11/EB um sama efni sem breytir þeirri fyrrnefndu. 6 Samkvæmt eldri lögum um mat á umhverfisáhrifum kvað skipulagsstjóri ríkisins upp úrskurði um mat á umhverfisáhrifum, sjá t.d. 8. gr. þeirra laga. I yngri lögum um sama efni kveður Skipulags- stofnun upp úrskurði, sbr. 11. gr. laganna. Sjá einnig 4. og 5. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. 158
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.