Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 33
í framvarpi til laga um umhverfismat sem varð að lögum nr. 63/1993 um mat
á umhverfisáhrifum voru ekki sambærileg ákvæði. Samkvæmt 3. mgr. 10. gr.
þess frumvarps var gert ráð fyrir því að skipulagsstjóri tæki ákvörðun um
tilkynningu framkvæmdaraðila, þ.e.a.s. efni hennar, og hvort ákvæðum laganna
hefði verið fullnægt eða hvort þörf væri á ítarlegri gögnum. Þessari ákvörðun
var síðan hægt að skjóta til æðra stjórnvalds, þ.e. til umhverfisráðherra, sam-
kvæmt 15. gr. frumvarpsins. I þeim tilvikum sem framkvæmdaraðili sá sjálfur
um gerð og framkvæmd umhverfismats í samræmi við 11. gr. frumvarpsins var
einnig gert ráð fyrir því að skipulagsstjóri tæki ákvörðun um hvort hann teldi
niðurstöður framkvæmdaraðila fullnægjandi og í þeim tilvikum sem matið upp-
fyllti ekki kröfur laganna eða frekari upplýsinga var þörf gat skipulagsstjóri
krafist þess að framkvæmdaraðili aflaði frekari upplýsinga eða gagna í sam-
ræmi við 3. og 4. mgr. 11. gr. framvarpsins. Þessari ákvörðun var einnig hægt
að skjóta til umhverfisráðherra í samræmi við 15. gr. frumvarpsins.81 Hins veg-
ar var ekki gert ráð fyrir því að skipulagsstjóri féllist á framkvæmd eða eftir
atvikum legðist gegn framkvæmd og var hlutverk hans takmarkað við það að
leggja mat á efni tilkynningar eða eftir atvikum matsskýrslu.
Frumvarpinu var breytt í meðföram umhverfisnefndar Alþingis. í breytingar-
tillögu nefndarinnar segir svo:
Efni hinnar nýju 8. gr. byggir á því sem að framan er sagt. í 3. mgr. 10. gr. og 11. gr.
frumvarpsins er gert ráð fyrir að upplýsingar, er framkvæmdaraðili veitir, geti upp-
fyllt skilyrði frumvarpsins um mat á umhverfisáhrifum þannig að ekki sé þörf frekara
mats. Lagt er til að í greininni verði kveðið á um að innan átta vikna frá því að skipu-
lagsstjóri hefur birt tilkynningu framkvæmdaraðila taki hann ákvörðun um hvort fall-
ist er á viðkomandi framkvæmd eða gerð krafa um frekara mat á umhverfisáhrifum.
Síðan segir um breytingarnar sem varða 1. mgr. 11. gr.:
í hinni nýju 11. gr. er kveðið á um að skipulagsstjóri kveði upp úrskurð á grundvelli
fyrirliggjandi gagna ... Með þessu ákvæði er þannig kveðið skýrar en í frumvarpinu
á um úrskurðarvald skipulagsstjóra. I úrskurði skipulagsstjóra getur falist að fallist er
á viðkomandi framkvæmd, með eða án skilyrða, að krafa er gerð um frekari könnun
einstakra þátta eða lagst er gegn viðkomandi framkvæmd.82
Að mínu áliti er grandvallarmunur á því að leggja mat á efni tilkynningar eða
matsskýrslu og hins vegar að leggja mat á efni matsskýrslu og taka ákvörðun
um hvort fallist er á eða eftir atvikum lagst er gegn framkvæmd eftir því hvort
umhverfisáhrif hennar eru talin umtalsverð eða ekki.
í gildandi lögum um mat á umhverfisáhrifum er ekki gert ráð fyrir frammati
þannig að þar er ekki að finna ákvæði samsvarandi 1. mgr. 8. gr. eldri laga. Hins
vegar segir í 2. mgr. 11. gr. núgildandi laga:
81 Sjá frumvarp til laga um umhverfismat, Alþt. 1992, A-deild, þskj. 87, bls. 983-994.
82 Ibid., nefndarálit, þskj. 1139, bls. 5742.
181