Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 37

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 37
kvæmda og 17. gr. þeirra um eftirlit,89 í athugasemdum við frumvarpið sem varð að gildandi lögum90 og í fjölmörgum úrskurðum sem gengið hafa. I framhaldi af því sem fjallað var um í kafla 7.1 er rétt að skoða tengslin á milli 1. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 11. gr. eldri laga annars vegarog hins vegar 1. og 13. gr. sömu laga. Eins og komið var að í kafla 7.1 var frumvarpi því er varð að lögum nr. 63/1993 um mat á umhverfisáhrifum breytt í meðförum Alþingis og ákvæðin um úrskurðarvald skipulagsstjóra gerð skýrari að mati löggjafans. Hér er átt við 1. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 11. gr. laganna. Markmiði laganna samkvæmt 1. gr. var breytt óverulega og var grundvallaratriðið um að mat á umhverfis- áhrifum væri undanfari ákvörðunar samþykkt óbreytt.91 Hins vegar var ákvæði 13. gr. (14. gr. frumvarpsins) samþykkt eins og það var orðað í frumvarpinu. En hafa verður í huga að orðalag þess var í samræmi við þá skipan sem upphaflega var gert ráð fyrir, þ.e. að skipulagsstjóri tæki einungis ákvörðun um efni til- kynningar framkvæmdaraðila og eftir atvikum um efni matsskýrslu. í frum- varpinu segir í athugasemd við 14. gr.: „Svo að markmiðum þeim er koma fram í 1. gr. frumvarps þessa verði náð er kveðið svo á um í 14. gr. að leyfisveitanda beri að taka mið af upplýsingum þeim sem umhverfismat er grundvallað á og niðurstöðu þess. Er ákvæði þetta í samræmi við 8. gr. tilskipunar 85/337/ EBE“.92 í 8. gr. tilskipunar 85/337/EBE segir: „Þegar tekin er afstaða til þess hvort heimila eigi framkvæmdir ber að taka mið af upplýsingum þeim sem safnað er samkvæmt 5., 6. og 7. gr.“93 og er hér átt við þær upplýsingar sem geta á í matsskýrslu.94 Segja má að með breytingunum sem gerðar voru á frumvarp- inu sem varð að lögum nr. 63/1993 hafi myndast ákveðin mótsögn í lögunum sem fólst í því að markmið þeirra var að tryggja að mat á umhverfisáhrifum væri undanfari leyfis til framkvæmda og átti leyfisveitandi að taka fullt tillit til þeirra upplýsinga sem matið grundvallaðist á. Jafnframt þessu var skipulags- stjóra, sem að sjálfsögðu er aldrei leyfisveitandi, falið að taka ákvörðun um hvort fallast bæri á framkvæmdina eða ekki í samræmi við umfang umhverfis- áhrifanna. Með þeim breytingum sem þannig voru gerðar á hlutverki skipulags- stjóra varð einnig til réttaróvissa þar sem ekki var að fullu ljóst hvort leyfis- veitandi væri bundinn af úrskurði skipulagsstjóra eða hvaða heimildir leyfis- veitandi hefði í samræmi við þau lög sem leyfi hans væru byggð á. 89 Sjá einnig sératkvæði í Stjörnugrísmálinu fyrra. 90 Sjá Alþt. 1999-2000, A-deild, þskj. 644, bls. 3504. 91 Alþt. 1992-1993, A-deild, þskj. 87, bls. 983, svo og þskj. 1139, bls. 5739, og þskj. 1140, bls. 5745. 92 Ibid., þskj. 87, bls. 995. 93 Á ensku hljóðar 8. gr. tilskipunarinnar svo: „Information gathered pursuant to Articles 5, 6 and 7 must be taken into consideration in the development consent procedure". 94 Við þetta er bætt að þótt 8. gr. tilskipunar 85/337/EBE hafi nú verið breytt, sbr. 10. lið 1. gr. til- skipunar 97/11/EB, er ákvæðið efnislega óbreytt hvað varðar það atriði sem hér er til skoðunar. f 10. lið 1. gr. tilskipunar97/ll/EB segir: „The results of consultations and the information gathered pursu- ant to Articles 5, 6 and 7 must be taken into consideration in the development consent procedure". 185
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.