Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 46

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 46
í úrskurði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum fer fram skrif- legur málflutningur þar sem efni matsskýrslu og umsagnir vegna hennar eru vegnar og metnar, sbr. 4.-6. mgr. 10. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum. Loks er tekin lokaákvörðun samkvæmt 2. mgr. 11. gr. og þá liggur fyrir úrskurðarorð. Eins og komið var að í 5. kafla hefur framkvæmdin oft verið sú að framkvæmd- araðila ber að sanna að fyrirhuguð framkvæmd hafi ekki í för með sér umtals- verð umhverfisáhrif. Sjá nánar t.d ÚS 17/99 og ÚS 8/00. Jafnframt virðist sem umsagnaraðilar, einkum opinberar stofnanir, sérfræðingar og almenningur eigi að sanna að fyrirhuguð framkvæmd hafi í för með sér umtalsverð umhverfis- áhif, sbr. einkum ÚR 1/11/00. Ekki virðist skipta máli hvort fyrirhugaðar fram- kvæmdir eru á skyldulista (flokkur 1) eða á öðrum listum, sbr. það sem sagði í kafla 4.3 um löglíkur á umtalsverðum umhverfisáhrifum. Þó skal bent á að ÚS 8/01 sker sig nokkuð úr og er í honum byggt á almennri varúðarnálgun. Eiginlegt mat á umhverfisáhrifunum gengur ekki út á það að sanna eða eftir atvikum afsanna ætluð umhveifisáhrif enda er í mörum tilvikum ógerningur að sanna eða afsanna þau áhrif sem tilteknar framkvæmdir hafa eða kunna að hafa á umhverfið.113 Þetta atriði er ein mikilvægasta breytingin sem orðið hefur í umhverfisrétti síðan farið var að lýsa þeim reglum til tilheyra réttarsviðinu sem einni heild.114 Mat á umhverfisáhrifum gengur fyrst og fremst út á það að greina og meta þau umhverfisáhrif sem búist er við og benda á óvissuþætti. Ef byggt er á hefðbundnum sönnunarreglum eru líkur á að komið verði í veg fyrir alla var- úðarhugsun og varúðarreglu verði í raun hafnað þar sem hún gæti átt við.115 Opinber endurskoðun á fyrst og fremst að beinast að því að kanna gæði og áreið- anleika þeirra upplýsinga sem lagðar eru fram af hálfu framkvæmdaraðila. Með úrskurði Skipulagsstofnunar eða eftir atvikum umhverfisráðuneytis lýkur mati á umhverfisáhrifum. Eftir að úrskurður hefur verið kveðinn upp og birtur verða einungis gerðar á honum minni háttar breytingar í samræmi við 6. mgr. 11. gr. gildandi laga um mat á umhverfisáhrifum. Samkvæmt fyrr- nefndri heimild getur Skipulagsstofnun gert þessar breytingar eftir birtingu úrskurðar hafi forsendur breyst vegna nýrra upplýsinga, hafi þær breytingar ekki verið fyrirsjáanlegar þegar úrskurður var birtur eða séu þær taldar til bóta og í samræmi við tilgang laganna og er hér væntanlega átt við breytingar á efni úrskurðarins. Ekki er þó ljóst af ákvæðinu hver eigi að hafa frumkvæði að því að breytingar séu gerðar og engar upplýsingar er að finna í athugasemdum við 6. mgr. 11. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 106/2000. Heimildin í 6. mgr. 11. gr. er samkvæmt orða sinna hljóðan takmörkuð við úrskurði Skipulags- stofnunar. 113 Sjá hér einnig leiðbeiningar Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem komið var að í kafla 2.3 og leiðbeiningarnar sem bent var á f kafla 2.2. 114 Sjá nánar óbirta grein mína „Not Business as Usual. A Study of the Precautionary Principle." Greinin mun fljótlega birtast í afmælisriti til heiðurs dr. Gunnari G. Schram. 115 Ibid. 194
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.