Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 48

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 48
breytingar sem ekki falla undir 6. mgr. 11. gr. laganna, þarf að fara fram mat á umhverfisáhrifum á nýjan leik. Jafnframt er rétt að geta þess að samkvæmt 7. mgr. 11. gr. er byggt á því að Skipulagsstofnun ákveði hvort mat á umhverfis- áhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar skuli fara fram að nýju hefjist fram- kvæmdir ekki innan tíu ára frá úrskurði stofnunarinnar. í kafla 2.2 var vikið að því að ein mikilvægasta breytingin sem tilskipun 97/11/EB inniheldur er heimildin til þess að krefja framkvæmdaraðila áfram um upplýsingar þótt álit opinbers aðila á matsskýrslu liggi fyrir, sbr. lið 7.2 í 1. gr. tilskipunar 97/11/EB sem breytir 5. gr. tilskipunar 85/337/EBE, svo og 4. mgr. 11. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum sem fjallað var um í kafla 7.2. Meðal annars vegna þessa er nauðsynlegt að lög um mat á umhverf- isáhrifum, og eftir atvikum lög sem innihalda heimildir til útgáfu einstakra leyfa til framkvæmda sem sem háðar eru mati á umhverfisáhrifum, svo og lög sem varð einstakar lögákveðnar mótvægisaðgerðir, innihaldi reglur sem tryggja sveigjanleika, m.a. svo að unnt sé að taka tillit til eftirfarandi þátta: (i) Breytinga sem kunna að verða á fyrirhugaðri framkvæmd. (ii) Breytinga sem kunna að verða á mögulegum mótvægisaðgerðum, þróunar á nýrri tækni o.s.frv. (iii) Nýrra upplýsinga um ástand umhverfisins og einstakra þátta þess. (iv) Nýrra upplýsinga um umhverfisáhrif, m.a. vegna vöktunar viðkomandi fram- kvæmdar eða starfsemi sem henni fylgir, o.fl. Þessir þættir, einn eða fleiri, geta orðið þess valdandi að breytingar geta orðið á umhverfisáhrifum og m.t.t. þess er úrskurðarformið heftandi þar sem þörf getur verið á nýjum úrskurði, þ.e. ef meiri háttar breytingar verða, og er það tímafrekur ferill sem framkvæmdaraðili ber væntanlega kostnaðinn af. Tilskipanir þær sem gildandi lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifúm byggja á gera ráð fyrir því að framkvæmdaraðili geti fengið álit opinbers aðila á efni matsskýrslu áður en hann sækir um leyfi fyrir matsskyldri framkvæmd. Einnig er gert ráð fyrir því að áður en álit er gefið sé haft samráð við og leitað álits þeima stjórnvalda sem málið getur varðað um efni matsskýrslu og umsókn um leyfi fyrir matsskyldri framkvæmd. Sjá hér einkum lið 7.2 í 1. gr. tilskipunar 97/11/EB sem breytir 5. gr. tilskipunar 85/337/EBE, sbr. lið 8.1 í 1. gr. til- skipunar 97/11/EB sem breytir 1. mgr. 6. gr. tilskipunar 85/337/EBE. Jafnframt er gert ráð fyrir því að stjórnvöld tryggi rétt almennings til að koma að athuga- semdum við efni matsskýrslu áður en Ieyfi til framkvæmdar er gefið út, sbr. lið 8.2 í 1. gr. tilskipunar 97/11/EB sem breytir 2. mgr. 6. gr. tilskipunar 85/338/EBE. Þessi atriði sýna nauðsyn þess að annar farvegur en úrskurðarformið verði notað til þess að fjalla um matsskýrslu og mat á umhverfisáhrifum, þ.e. ef stefnt er að Iifandi mati á umhverfisáhrifum sem augljóslega stuðlar að bættri um- hverfisvernd. En þetta hefur án nokkurs vafa í för með sér margvísleg lögfræði- leg vandamál. Meðal annars verður að tryggja sérstaklega hagsmuni fram- 196
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.