Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 51

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 51
sé að breyta alþjóðlegri stefnumörkun og nýmælum í alþjóðlegum umhverfis- rétti í skýrar lagareglur sem hægt er að fara eftir innan tiltekins ríkis. Ymis þess- ara úrræða eru þar að auki óhefðbundin og önnur eru íþyngjandi, t.d. fyrir framkvæmdaraðila. En öll eru þau hugsuð til þess að stuðla að aukinni um- hverfisvemd með beinum eða óbeinum hætti. Auk bættra efnisregina hafa úrræði sem varða málsmeðferð og ákvarðanatöku í einstökum tilvikum einnig verið í brennidepli og er áherslan á þann þátt vaxandi í alþjóðlegum rétti. Mat á umhverfisáhrifum og löggjöf þar að lútandi verður að aðlaga að þeim kerfum sem fyrir eru, svo og þeim lögum, meginreglum og venjum sem gilda. Meðal annars þess vegna eru útfærslur á löggjöf sem varðar mat á umhverf- isáhrifum mismunandi, t.d. á Norðurlöndum. MálsmeðferðaiTeglur við mat á umhverfisáhrifum eru ekki hugsaðar til þess að bylta kerfum þótt ekki sé óhugs- andi að með tímanum verði einhverjar grundvallarbreytingar á þeim vegna lög- gjafar sem varðar umhverfismál, þ.m.t. löggjafar um mat á umhverfisáhrifum. Hins vegar er alltaf stefnt að sömu markmiðum með mati á umhverfisáhrifum þótt lagaleg umgjörð sé með mismunandi hætti. Eg hef í þessari grein fjallað vítt og breitt um mat á umhverfisáhrifum og um nokkur atriði sem varða lög um mat á umhverfisáhrifum og framkvæmd þeirra. Það er skoðun mín að í gildandi lögum125 og við framkvæmd þeirra komi fram tiltekinn misskilningur um tilgang og markmið mats á umhverfisáhrifum. Jafn- framt gefur úrskurður um mat á umhverfisáhrifum ekki alltaf rétta mynd af um- fangi þeirra umhverfisáhrifa sem við er búist, m.a. vegna þess að ætluð um- hverfisáhrif eru vegin beint á móti hagnaði eða öðrum ávinningi eða réttlætt m.t.t. hagnaðar sem viðkomandi framkvæmd er talin hafa í för með sér. Sú aðferð sem nú er notuð skapar ónauðsynlega spennu á milli framkvæmd- araðila og þeirra sem yfirfara matsskýrslu, þ.e. Skipulagsstofnunar, sérfræð- inga, almennings o.s.frv. Þar að auki verða heimildir leyfisveitanda óljósar þegar kemur að útgáfu leyfis til framkvæmda í samræmi við viðkomandi sérlög og ekki er ljóst hvort leyfisveitandi almennt séð er bundinn af niðurstöðu úr- skurðar. Að mínu mati er annar mælikvarði heppilegri en sá sem löggjafinn hef- ur valið og fram kemur í 2. mgr. I E gr. gildandi laga um mat á umhverfisáhrif- um. Rökréttara er að miða við hvort umhverfisáhrif fyrirhugaðrar framkvæmd- ar samkvæmt matsskýrslu og mat Skipulagsstofnunar og annarra á efni skýrsl- unnar, jafnvel þótt þau teljist að hluta eða í heild umtalsverð, séu ásættanleg eða eftir atvikum óásættanleg þegar kemur að því að gefa út leyfi fyrir viðkom- andi framkvæmd og að þá fari fram skoðun á efnahagslegum forsendum eða öðrum ávinningi viðkomandi framkvæmdar og það mat verði einungis leyfis- veitanda. Þessu til fyllingar hef ég sérstaklega bent á nokkur atriði sem að mínu mati undirstrika þörf á annars konar málsmeðferð en nú er í gildandi lögum. Að lokum skal lögð áhersla á að skýr umhverfislöggjöf er eitt af þeim úrræðum sem nota má til þess að ná betri árangri í umhverfisvemd. 125 Þessar athugasemdir eiga einnig við um eldri lög um mat á umhverfisáhrifum. 199
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.