Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 61

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 61
hinna undirliggjandi verðmæta nema þegar um gengisval (indeksoption) er að ræða. Til að hlotnast mismunargreiðsla verður kaupandi valréttar að selja verð- mætin þegar svo stendur á. Sé um hlutabréfagengisval (aktieindeksoption) að ræða er þessu hins vegar öfugt farið. Við uppgjör á þeim verður að fara fram mismunargreiðsla vegna þess að afhending hlutabréfanna, sem gengið byggist á, er ómöguleg. Eigandi valréttar getur lokið afleiðuviðskiptum með femum hætti. í fyrsta lagi getur hann beðið og séð hver þróunin verður, í öðm lagi krafist innlausnar svo fremi að það sé heimilt samkvæmt samningnum, í þriðja lagi selt valréttinn öðr- um, það er að segja ef um áhugasama kaupendur er að ræða, og í fjórða lagi óskað eftir lokun viðskiptanna. Lokun valréttar fer þannig fram að útgefandi og eigandi gera upp afleiðuviðskiptin með staðgreiðslu til eiganda. Þegar valréttur er ekki skráður í kauphöll jafngildir það því að útgefandi endurkaupi valréttinn af eiganda. Þegar um slíkar eignir er að ræða krefst lokunaraðgerð því samþykkis hans. Fallist útgefandi ekki á endurkaupin getur eigandi þó venjulega krafist innlausnar valréttarins. Fer uppgjör þá fram og samsvarar það að jafnaði þeirri þóknun er eigandi hefði fengið með því að selja sams konar valrétt á markaði. Þegar um skráðan valrétt er að ræða fer lokunin hins vegar fram samkvæmt fyrir fram ákveðnum reglum og flestum valréttarsamningum lýkur samkvæmt þeim. Til að gera þetta kleift hefur þó yfirleitt þurft að stofna sérstakar greiðslu- miðstöðvar (clearingsentralen). Um leið og valréttarsamningur hefur verið gerður kemur greiðslumiðstöðin inn í samninginn og verður gagnaðili beggja viðsemjenda. Samningssamband á milli hinna upprunalegu viðsemjenda hættir því að vera til. Þar eð greiðslumiðstöðin gerist aðili að öllum valréttarsamning- um með þessum hætti getur fjárfestir eins og A í dæmunum hér að framan, sem hefur keypt kaupval eða söluval, lokið samningnum að höfðu samráði við greiðslumiðstöðina með því að selja sams konar verðmæti og hann keypti. Þar eð greiðslumiðstöðin kemur einnig inn í þennan samning verða réttindi og skyldur A og greiðslumiðstöðvarinnar nákvæmlega eins. I stað þess að ljúka eða innleysa báða valréttina reynir greiðslumiðstöðin að upphefja þá, bæði greiðslulega og réttarlega. Með því að gera samning númer tvö getur A af þeim sökum losnað við samning númer eitt. Greiðsla sú, er A hlotnast fyrir valrétt númer tvö, ræður því þess vegna hvaða tekjur hann hefur af valrétti númer eitt. Dæmi 4. Viðskipti með skráðan valrétt um greiðslumiðstöð. A kaupir skráðan valrétt af B sem veitir honum rétt til að kaupa 1000 hlutabréf í X á genginu 150. Skömmu síðar gefur hann út sams konar valrétt til C. Greiðslumiðstöðin gerist aðili að báðum samningunum og er staða A gagnvart henni því sem hér segir: - réttur til að kaupa 1000 hlutabréf í X á genginu 150, - réttur til að selja 1000 hlutabréf í X á genginu 150. Þar sent réttindi og skyldur eru samhverfar reynir greiðslumiðstöðin að upp- hefja samningana með jöfnun. Eftir það er staða greiðslumiðstöðvarinnar sem hér segir: 209
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.